Frétt

fimmtudagur - 29. júlí 2010
Nr. 148/2010

Vísitala framleiðsluverðs í júní 2010

Vísitala framleiðsluverðs í júní 2010 var 192,9 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og lækkaði um 5,4% frá maí 2010. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 221,3 stig, sem er lækkun um 1,1% (vísitöluáhrif -0,4%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 233,6 stig, lækkaði um 11,5% (-4,2%). Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 0,3% (0,1%) og vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 5,8% (-0,9%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands lækkaði um 0,5% (-0,1%) milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir lækkaði um 7,0%          (-5,3%).

Miðað við júní 2009 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 13,5% en verðvísitala sjávarafurða um 1,7%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju hækkað um 38,1% en matvælaverð hefur hækkað um 2,6%.

Grunnur vísitölu framleiðsluverðs er endurmetinn árlega og frá og með júní 2010 byggir matið á upplýsingum Hagstofu Íslands um söluverðmæti framleiddra vara árin 2008 og 2009.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2009
Júní 1,1 0,7 2,7 0,9 0,4 1,5
Júlí 3,5 1,4 7,6 0,5 1,2 4,4
Ágúst 3,3 1,8 5,2 1,1 1,8 3,9
September 2,7 -2,0 12,1 0,2 -0,7 4,1
Október 0,3 4,1 -4,5 -0,9 0,3 0,2
Nóvember 1,2 0,9 2,0 0,2 0,7 1,4
Desember 1,9 1,1 4,2 0,0 -0,2 2,6
2010
Janúar 3,9 -1,6 11,3 0,5 1,1 4,8
Febrúar 0,8 -1,0 3,9 0,4 -0,3 1,2
Mars -2,7 0,7 -8,0 -0,5 0,5 -3,7
Apríl 2,5 -0,5 7,0 0,5 0,4 3,2
Maí 1,2 -1,9 6,4 0,1 -0,6 1,8
Júní -5,4 -1,1 -11,5 0,3 -0,5 -7,0

Breyting frá fyrra ári (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2009
Júní 11,0 25,6 -13,3 14,2 15,7 7,6
Júlí 12,2 27,8 -8,4 14,3 13,6 10,2
Ágúst 13,8 29,9 -10,6 14,9 15,3 11,4
September 12,4 17,2 -1,2 13,4 13,0 10,0
Október 0,0 1,4 -17,7 8,6 10,1 -6,4
Nóvember -4,0 -6,9 -17,8 5,0 7,9 -11,1
Desember 5,4 0,5 5,1 2,2 5,6 3,3
2010
Janúar 18,1 4,5 40,9 2,5 6,6 21,7
Febrúar 29,8 20,5 67,8 3,2 3,9 41,9
Mars 28,4 22,6 62,8 2,9 4,3 40,0
Apríl 22,8 9,5 58,1 3,2 4,8 30,6
Maí 21,4 3,6 60,3 3,2 4,8 28,2
Júní 13,5 1,7 38,1 2,6 3,8 17,5

Við mat á verðbreytingum í þessari frétt má hafa til hliðsjónar að meðalverð erlends gjaldeyris í júní 2010 var 2,7% lægra en í maí 2010 en 7,2% lægra en í júní 2009. Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog.

Talnaefni



Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200, netfang framleidsluverd[hja]hagstofa.is

Athugasemd

   
Nafn Netfang *
   
Hagstofan áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem ekki eru talin viðeigandi!

Leitarvél
Byggir á LiSA CMS. Eskill -LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi