Reglur um birtingaráætlun
Fréttir » Reglur um birtingaráætlun
- Allt útgefið efni Hagstofu Íslands er birt samkvæmt áætlun: fréttatilkynningar, hagtölur og útgáfur.
- Hagstofan gerir birtingaráætlun fyrir heilt almanaksár (1. janúar til 31. desember) og gefur hana út í nóvember ár hvert. Á henni eru fastar dagsetningar fyrir verðtryggingarvísitölur, launavísitölu (þar með talda vísitölu greiðslujöfnunar), svo og hagtölur um landsframleiðslu, vinnumarkað og utanríkisverslun.
- Annað efni en það sem að ofan greinir er fært á birtingaráætlunina í lotum. Hver lota er tveir heilir almanaksmánuðir (núverandi og næsti). Í því felst að dagsetningar eru fullgildar tvo mánuði fram í tímann á birtingaráætluninni. Aðrar dagsetningar geta tekið breytingum.
- Reynist óhjákvæmilegt að víkja frá fastri dagsetningu sem fellur undir lotu gefur Hagstofan út fréttatilkynningu um það.
- Hagstofan birtir öllum notendum sínum efni sitt samtímis. Allt efni á birtingaráætlun er gefið út kl. 9.00 að morgni. Notendur geta fengið sendar tilkynningar um nýjar fréttir með tölvupósti, auk þess sem skiptiborð Hagstofunnar, upplýsingaþjónusta eða tiltekið verksvið veitir upplýsingar frá kl. 9.00 birtingardaginn.