RSS fréttaveitur
Hagstofan býður notendum sínum að sækja fréttir stofnunarinnar sem RSS-fréttalista. Fyrst um sinn bjóðast þeir fréttaflokkar sem tíðast eru uppfærðir.
Samandregnar fréttaveitur
- Nýjustu fréttir (50) Hagstofu Íslands
- Fréttir Hagstofu Íslands
- Verðvísitölur Hagstofu Íslands - vísitala neysluverðs, byggingarvísitala, launavísitala, samræmd vísitala neysluverðs og vísitala framleiðsluverðs
- Birtingaráætlun Hagstofu Íslands
Einstakir flokkar
| Vísitölur | Atvinnulíf | Efnahagsmál o.þ.h. | Samfélagsmál |
Hagstofan kappkostar að veita notendum eins góða þjónustu og mögulegt er og því eru allar ábendingar um RSS-þjónustuna vel þegnar. Ennfremur væri Hagstofan þakklát ef þeir sem hyggjast birta fréttalista stofnunarinnar á eigin vefjum sendu okkur línu.
Hvað er RSS?
RSS er aðferð til að miðla fréttatengdu efni um netið. RSS er einfalt xml-forsnið (e. format) sem lýsir fréttatengdu efni svo að hægt sé að miðla efni úr upplýsingaveitum á staðlaðan hátt. Nokkrar útgáfur af RSS eru til og er sú nýjasta númer 2.0. Fjölmargar fréttaveitur um allan heim miðla efni sínu með þessum hætti, t.d. www.CNN.com og www.bbc.co.uk. Þá hefur stjórnarráðið einnig fjölmargar RSS-fréttaveitur á sínum snærum.
RSS-lesarar
Til eru sérstök forrit, ekki ósvipuð tölvupóstforritum, sem hægt er að nota til að skoða RSS-fréttaveitur. Dæmi um slíka lesara eru t.d. SharpReader og FeedReader. Ennfremur getur hver sem er birt RSS-fréttalista, t.d. frá Hagstofunni, á eigin vefjum, skjáborðum eða öðrum forritum.
Hægt er að nota Microsoft Outlook 2007 til að halda utan um fréttaveitur.
RSS hjá öðrum hagstofum