FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 30. NÓVEMBER 2015

Vöruskiptajöfnuður
Í októbermánuði voru fluttar út vörur fyrir 46,8 milljarða króna og inn fyrir tæpa 50,9 milljarða króna fob (54,4 milljarða króna cif). Vöruskiptin í október, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 4,0 milljarða króna. Í október 2014 voru vöruskiptin hagstæð um 11,4 milljarða króna á gengi hvors árs¹.

Fyrstu tíu mánuði ársins 2015 voru fluttar út vörur fyrir 527,0 milljarða króna en inn fyrir 547,7 milljarða króna fob (584,6 milljarða króna cif). Halli var því á vöruskiptum við útlönd sem nam 20,7 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma árið áður voru vöruskiptin óhagstæð um 3,9 milljarða á gengi hvors árs¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 16,8 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Fyrstu tíu mánuði ársins 2015 var verðmæti vöruútflutnings 35,9 milljörðum eða 7,3% hærra, á gengi hvors árs1, en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 53,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 10,7% hærra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna útflutnings á áli. Sjávarafurðir voru 42,0% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 7,9% hærra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna útflutnings á fiskimjöli. Á móti dróst útflutningur á heilfrystum fiski saman.

Innflutningur
Fyrstu tíu mánuði ársins 2015 var verðmæti vöruinnflutnings 52,7 milljörðum eða 10,7% hærra, á gengi hvors árs¹, en á sama tíma árið áður, aðallega vegna hrá- og rekstrarvöru og flugvéla. Á móti dróst innflutningur á eldsneyti saman.

 

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-október 2014 og 2015
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á gengi hvors árs, % jan.-október
  Október Jan.-október
  2014 2015 2014 2015
           
Útflutningur alls fob 61.686,6 46.836,0 491.068,6 526.957,0 7,3
Sjávarafurðir 25.594,4 19.994,5 205.162,8 221.339,7 7,9
Landbúnaðarvörur 1.460,7 1.257,7 8.928,5 10.934,1 22,5
Iðnaðarvörur 33.232,1 24.580,8 254.432,8 281.608,5 10,7
Aðrar vörur 1.399,4 1.003,0 22.544,5 13.074,7 -42,0
           
Innflutningur alls fob 50.246,8 50.865,2 494.961,6 547.692,4 10,7
Matvörur og drykkjarvörur 4.629,0 4.484,0 45.567,7 55.576,5 22,0
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 14.762,2 13.739,5 134.482,5 158.997,2 18,2
Eldsneyti og smurolíur 8.794,4 5.307,4 90.387,1 73.060,1 -19,2
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 10.829,4 13.360,0 102.967,1 112.091,5 8,9
Flutningatæki 3.688,2 6.751,9 59.014,5 80.426,2 36,3
Neysluvörur ót.a. 7.530,6 7.205,4 60.603,9 66.387,5 9,5
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 13,0 17,1 1.938,8 1.153,5 -40,5
           
Vöruskiptajöfnuður 11.439,8 -4.029,2 -3.893,0 -20.735,4 .

 

¹Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruskiptum.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.