FRÉTT VINNUMARKAÐUR 02. FEBRÚAR 2017

Á fjórða ársfjórðungi 2016 voru að jafnaði 196.700 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði. Af þeim voru 191.700 starfandi og 5.000 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 83%, hlutfall starfandi mældist 80,9% og atvinnuleysi var 2,5%. Frá fjórða ársfjórðungi 2015 fjölgaði starfandi fólki um 8.400 og hlutfallið jókst um 1,9 prósentustig. Atvinnulausum fækkaði á sama tíma um 900 manns og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli lækkaði um 0,6 prósentustig. Atvinnulausar konur voru 2.500 og var atvinnuleysi á meðal kvenna 2,7%. Atvinnulausir karlar voru 2.500 eða 2,4%. Atvinnuleysi var 2,8% á höfuðborgar-svæðinu og 2% utan þess. 

 

Langtímaatvinnuleysi 7%
Á fjórða ársfjórðungi 2016 höfðu 300 manns verið atvinnulausir í 12 mánuði eða lengur samanborið við 900 manns á fjórða ársfjórðungi 2015. Langtímaatvinnuleysi, sem hlutfall af heildarfjölda atvinnulausra var 7% samanborið við 15,5% á sama tíma fyrir ári. Ef hlutfallið er tekið af öllum á vinnumarkaði þá voru 0,2% langtímaatvinnulausir samanborið við 0,5% árið áður. Leita þarf aftur til loka ársins 2008 til þess að sjá viðlíka mælingu á fjölda langtímaatvinnulausra.

Vinnutími
Á fjórða ársfjórðungi 2016 voru að jafnaði 176.400 manns við vinnu í hverri viku ársfjórðungsins eða 92% starfandi fólks og 74,4% af heildarmannfjölda 16-74 ára. Meðalfjöldi heildarvinnustunda á viku voru 39,2 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 44,5 klst. hjá þeim sem voru í fullu starfi og 23,2 klst. hjá þeim sem voru í hlutastarfi.

Vinnumarkaður á 4. ársfjórðungi 2016 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.