Heildarlaunakostnaður á greidda stund jókst um 1,1% frá fyrri ársfjórðungi í atvinnugreininni iðnaði og um 0,6% í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð. Á sama tímabili dróst heildarlaunakostnaður á greidda stund saman um 3,2% í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu og um 1,1% í samgöngum og flutningum.

Heildarlaunakostnaður án óreglulegra greiðslna dróst saman um 0,8% í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu frá fyrri ársfjórðungi. Hins vegar jókst hann um 3,3% í atvinnugreininni iðnaður, um 2% í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og um 1% samgöngum og flutningum. Í heildarlaunakostnaði án óreglulegra greiðslna er ekki tekið tillit til greiðslna sem ekki eru gerðar upp á hverju útborgunartímabili.

Árshækkun heildarlaunakostnaðar á greidda stund frá 3. ársfjórðungi 2009 var á bilinu 8,2% til 10,5%. Mest var hækkunin í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu en minnst í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð.


 

Vísitala launakostnaðar er kostnaðarvísitala sem sýnir breytingar á launakostnaði á greidda stund og er ekki leiðrétt fyrir breytingum í samsetningu vinnuafls og vinnustunda. Niðurstöður eru birtar með fyrirvara um breytingar. Vísitala launakostnaðar er gefin út ársfjórðungslega og reiknuð samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og Ráðsins (EB) nr. 450/2003.

Talnaefni