Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í desember 2019, er 473,3 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,11% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 404,0 stig og hækkar um 0,27% frá nóvember 2019.

Flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 9,6% (áhrif á vísitöluna 0,12%). Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) lækkar um 0,5% (-0,08%).

Meðalvísitala neysluverðs árið 2019 var 468,6 stig, 3,0% hærri en meðalvísitala ársins 2018. Samsvarandi breyting var 2,7% árið 2018 og 1,8% árið 2017.

Meðalvísitala neysluverðs án húsnæðis árið 2019 var 400,1 stig, 2,6% hærri en meðalvísitala ársins 2018. Samsvarandi breyting var 0,9% árið 2018 og -2,2% árið 2017.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,0% en vísitalan án húsnæðis hefur hækkað um 1,7%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í desember 2019, sem er 473,3 stig, gildir til verðtryggingar í febrúar 2020. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 9.345 stig fyrir febrúar 2020.

Breytingar á vísitölu neysluverðs 2018-2019
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Vísitala Breytingar í
hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu12 mánuði, %
2018
Desember463,90,79,26,44,13,7
2019
Janúar462,0-0,4-4,82,33,23,4
Febrúar462,90,22,42,13,23,0
Mars465,30,56,41,23,82,9
Apríl467,00,44,54,43,33,3
Maí468,00,22,64,53,33,6
Júní469,80,44,73,92,63,3
Júlí468,8-0,2-2,51,63,03,1
Ágúst470,10,33,41,83,13,2
September470,50,11,00,62,23,0
Október472,20,44,42,92,22,8
Nóvember472,80,11,52,32,12,7
Desember473,30,11,32,41,52,0

Talnaefni