Gistiskýrslur 2011


  • Hagtíðindi
  • 20. apríl 2012
  • ISSN: 1670-4584


Sækja pdf skjal
Gistinætur voru rúmar 3,2 milljónir árið 2011 og fjölgaði um 8,3% milli ára. Erlendir ríkisborgarar gistu flestar nætur (75%) og fjölgaði um 14% frá árinu áður. Gistinóttum Íslendinga fækkaði hins vegar um 6%. Eins og undanfarin ár gistu Þjóðverjar hér flestar nætur, þá Bretar og svo Bandaríkjamenn. Hlutfallslega fjölgaði gistinóttum Bandaríkjamanna mest milli ára (tæp 64%). Flestar gistinætur voru á hótelum og gistiheimilum (alls 70%) og mest fjölgun var á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu.

Til baka