Félagsþjónusta sveitarfélaga 2011


  • Hagtíðindi
  • 4. október 2012
  • ISSN: 1670-4681


Sækja pdf skjal
Árið 2011 fengu 7.715 heimili fjárhagsaðstoð sveitarfélaga og hafði heimilum sem þáðu slíkar greiðslur fjölgað um 805 (11,6%) frá árinu áður og um 1.721 (28,7%) frá 2009. Fjölmennustu hóparnir árið 2011 sem fengu fjárhagsaðstoð voru sem fyrr einstæðir barnlausir karlar (43,2% heimila) og einstæðar konur með börn (26,8% heimila). Árið 2011 var tæplega helmingur (48,3%) fjárhagsaðstoðarþega atvinnulaus og af þeim tæplega tveir þriðju án bótaréttar, alls 2.228 einstaklingar.

Til baka