Laun starfsstétta á almennum vinnumarkaði 2012


  • Hagtíðindi
  • 16. apríl 2013
  • ISSN: 1670-4509


Sækja pdf skjal
Árið 2012 voru regluleg laun fullvinnandi launamanna á almennum vinnumarkaði 423 þúsund krónur að meðaltali og 292 þúsund krónur hjá starfsfólki í hlutastarfi. Heildarlaun fullvinnandi launamana árið 2012 voru 510 þúsund krónur. Stjórnendur voru með hæstu launin á almennum vinnumarkaði árið 2012 en regluleg laun fullvinnandi stjórnenda voru 821 þúsund krónur að meðaltali á mánuði og heildarlaun þeirra voru 904 þúsund krónur. Þá voru laun að jafnaði lægst hjá verkafólki, en regluleg laun þeirra voru 296 þúsund krónur að meðaltali hjá fullvinnandi launamönnum.

Til baka