300.000 íbúinn

Í desember sl. lá ljóst fyrir að landsmenn yrðu 300.000 snemma árs 2006. Af þessu tilefni ákvað Hagstofa Íslands að setja upp mannfjöldaklukku á vefnum þar sem landsmenn gætu fylgst með fólksfjölgun þar til þrjú hundruð þúsundasta markinu yrði náð. Hraði mannfjöldaklukkunnar tók mið af hreyfingum í þjóðskrá dag frá degi.

Samanborið við flest lönd í Evrópu var fólksfjölgun á Íslandi óvenju mikil alla 20. öldina og nærri lætur að landsmönnum hafi tvívegis fölgað um helming á hundrað árum. Rétt fyrir aldamótin 1900 var íbúafjöldinn 75.000, 150.000 árið 1952 og 300.000 nú í ársbyrjun 2006.

Fram undir 1980 var ör fólksfjölgun hérlendis nær eingöngu rakin til mikillar náttúrulegrar fjölgunar. Lífslíkur jukust alla 20. öldina og í samanburði við önnur Evrópulönd hefur fæðingartíðni hér á landi verið óvenju há. Við upphaf sjöunda áratugarins gat hver kona vænst þess að eignast fjögur börn á lífsleiðinni. Undanfarna ártugi hefur dregið úr frjósemi og um þessar mundir eignast konur hér á landi tvö börn um ævina. Að meðaltali fæðast nú tólf börn á dag og fimm einstaklingar deyja á degi hverjum.

Mannfjöldaklukkan sló 300.000 um kl. 7 um morguninn mánudaginn 9. janúar 2006. Hagstofunni þótti við hæfi að það barn, sem fæddist hér á landi sem næst þessum tíma, teldist þrjú hundruð þúsundasti íbúi landsins. Þetta er drengur sem fæddist á fæðingardeild Landspítala-háskólasjúkrahúss á sjöunda tímanum 9. janúar, sonur Erlu Maríu Andrésdóttur og Haraldar Arnarsonar í Reykjanesbæ.

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og Hallgrímur Snorrason, hagstofustjóri fóru í heimsókn á fæðingardeildina daginn eftir og afhentu foreldrum drengsins skjal til staðfestingar á því að sonur þeirra teljist þrjú hundruð þúsundasti skráði íbúi Íslands.

Meðfylgjandi myndir voru teknar við það tækifæri:


300 þúsundasti íbúinn ásamt foreldrum sínum, þeim
Erlu Maríu Andrésdóttur og Haraldi Arnarsyni. 

 

 
Hagstofustjóri óskar til hamingju!
Afi og amma ásamt starfsfólki sjúkrahússins horfa á.

     


Forsætisráðherra afhendir skjalið sem staðfestir að nýfæddi
drengurinn teljist 300 þúsundasti skráði íbúi Íslands.

   
 
 
     

Leitarvél
Byggir á LiSA CMS. Eskill -LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi