mánudagur - 22. október 2007
Nr. 162/2007
Útskrifađir nemendur úr framhaldsskólum og háskólum 2005-2006
Aldrei hafa fleiri nemendur útskrifast af háskólastigi á einu skólaári
Á háskólastigi útskrifuđust 3.362 nemendur međ 3.388 próf skólaáriđ 2005-2006. Aldrei hafa fleiri útskrifast úr námi á háskólastigi á Íslandi á einu skólaári síđan gagnasöfnun Hagstofu Íslands hófst áriđ 1995. Brautskráđum nemendum fjölgađi um 453, eđa 15,6% frá árinu áđur. Brautskráđum konum fjölgađi um 281 (14,2%) en körlum um 172 (18,4%). Konur voru tveir ţriđju (67,1%) ţeirra sem útskrifuđust međ próf á háskólastigi og karlar ţriđjungur (32,9%) útskrifađra. Aldursdreifing útskrifađra nemenda var frá 19 ára og upp í 75 ára aldur.
Aldrei áđur hafa fleiri útskrifast međ doktorspróf á einu skólaári, eđa 15 nemendur, 7 karlar og 8 konur. Áriđ áđur voru 14 doktorar brautskráđir. Ekki hafa fleiri lokiđ meistaragráđu á Íslandi á einu skólaári. Ţeir voru 411 og fjölgađi um 119 frá fyrra ári, sem er fjölgun um 40,8%. Konum fjölgađi um 84 (49,7%) og körlum um 35 (28,5%).
Flestar brautskráningar á háskólastigi eru vegna nemenda sem ljúka fyrstu háskólagráđu. Ţćr voru 2.441 talsins skólaáriđ 2005-2006, og fjölgađi brautskráningum međ fyrstu háskólagráđu um 261 frá fyrra ári (12,0%).
Brautskráđir nemendur af framhaldsskólastigi hafa aldrei veriđ fleiri
Alls brautskráđust 4.832 nemendur af framhaldsskólastigi međ 5.317 próf skólaáriđ 2005-2006. Ţetta er fjölgun um 31 nemendur frá fyrra ári, eđa 0,7%. Aldrei áđur hafa svo margir nemendur útskrifast af framhaldsskólastigi á einu skólaári. Konur voru nokkru fleiri en karlar eđa 52,5% brautskráđra nemenda.
Brautskráningar úr ýmiss konar starfsnámi á framhaldsskólastigi voru 2.843. Flestir ljúka námi á sviđunum framleiđsla og mannvirkjagerđ eđa 1.159, en ţar á međal flokkast flestar iđngreinar. Nćstflestir luku námi í ţjónustugreinum, eđa 500 talsins. Brautskráđir nemendur međ sveinspróf voru 609, 12 fleiri en skólaáriđ 2004-2005.
Stúdentum fjölgađi um 29 frá fyrra ári
Alls útskrifuđust 2.452 stúdentar úr 31 skólum skólaáriđ 2005-2006; 29 fleiri en skólaáriđ 2004-2005. Ekki hafa áđur útskrifast stúdentar úr ţetta mörgum skólum á sama skólaári en skólaáriđ 2000-2001 voru stúdentar brautskráđir frá 30 skólum. Körlum međal nýstúdenta fjölgađi um 38 en konum fćkkađi um 9 frá fyrra ári. Skólaáriđ 2003-2004 fór hlutfall stúdenta sem hlutfall af tvítugum landsmönnum í fyrsta skipti yfir 60% og er nú 61,1%. Ţađ vekur athygli hversu miklu fleiri konur en karlar ljúka stúdentsprófi. Skólaáriđ 2005-2006 luku 1.450 konur stúdentsprófi, 73,3% af fjölda tvítugra ţađ ár en 1.002 karlar, 49,2% af fjölda tvítugra.
Um gögnin
Hagstofan birtir nú í fyrsta skipti innanlands tölur um próf samkvćmt endurskođađri alţjóđlegri flokkun menntunar, ISCED97 (International Standard Classification of Education). ISCED97 stađallinn leysti af hólmi fyrri ISCED stađal frá árinu 1976. ISCED97 byggir á tveimur sjálfstćđum flokkunarleiđum sem saman segja til um stig náms og menntunar, eftir stöđu ţess í menntakerfinu frá leikskólastigi til doktorsgráđu, og um sviđ, eftir innihaldi náms. Flokkun náms á námsbrautir var áđur byggđ á námsbrautaflokkun Hagstofu Íslands, en nú er miđađ viđ flokkun á sviđ samkvćmt ISCED97. Skilgreining á framhaldsskólastigi er óbreytt frá ISCED76 og heitir ţađ ISCED 3. Prófum, sem áđur voru talin á sérskóla- og háskólastigi í töflum Hagstofu Íslands samkvćmt ISCED76 er nú skipt á ţrjú stig samkvćmt ISCED97; viđbótarstig (ISCED 4), háskólastig (ISCED5) og doktorsstig (ISCED 6).
Talnaefni
Framhaldsskólar
Háskólar