Frétt

föstudagur - 3. apríl 2009
Nr. 65/2009

Kjósendur á kjörskrárstofni fyrir alţingiskosningar 25. apríl 2009

Sveitarstjórnir semja kjörskrár eftir kjörskrárstofnum sem Ţjóđskrá lćtur ţeim í té. Á kjörskrárstofnum vegna alţingiskosninganna 25. apríl 2009 eru 227.896 kjósendur, konur eru 114.295 en karlar 113.601. Konur eru ţví 694 eđa 0,6% fleiri en karlar. Viđ alţingiskosningarnar 12. maí 2007 voru 221.330 kjósendur á kjörskrá og nemur fjölgunin 6.566 eđa 3,0%.

Í endanlegri tölu kjósenda á kjörskrá, sem birt verđur í skýrslu Hagstofunnar um kosningarnar, verđur tekiđ tillit til tölu látinna og ţeirra sem fá nýtt ríkisfang eftir ađ kjörskrárstofnar voru unnir, svo og breytinga sem verđa á kjörskrá vegna leiđréttinga.

Kjósendur međ lögheimili erlendis eru 9.924 eđa 4,4% kjósendatölunnar og hefur ţeim fjölgađ um 1.131 frá síđustu alţingiskosningum eđa um 12,9%. Kjósendum međ lögheimili hér á landi fjölgar um 5.325 eđa 2,6%. Ţeir sem vegna aldurs fá nú ađ kjósa í fyrsta sinn til Alţingis eru 9.398 eđa 4,1% af kjósendatölunni.

Samkvćmt lögum um kosningar til Alţingis nr. 24/2000 á kosningarrétt hver íslenskur ríkisborgari sem náđ hefur 18 ára aldri ţegar kosning fer fram og á lögheimili hér á landi. Íslenskur ríkisborgari, sem náđ hefur 18 ára aldri og átt hefur lögheimili hér á landi, á og kosningarrétt í átta ár frá ţví hann flutti lögheimili af landinu, taliđ frá 1. desember nćstum fyrir kjördag. Slíkur ríkisborgari á og kosningarrétt hér á landi eftir ţann tíma, enda sé um ţađ sótt (međ ákvćđi til bráđabirgđa var kosningalögunum breytt ţannig ađ viđmiđunardagur 1. desember var fćrđur til 25. mars viđ kosningarnar í vor). Ákvörđun um ađ einhver sé ţannig á kjörskrá tekinn gildir í fjögur ár eftir ađ umsókn var lögđ fram. Nú eru á kjörskrárstofnum 772 kjósendur sem svo stendur á um en voru 227 viđ kosningarnar 2007. Ţessi fjölgun nú helgast af framan greindri lagabreytingu.

Samkvćmt annarri breytingu til bráđabirgđa á lögunum var  hver mađur nú tekinn á kjörskrá í ţví sveitarfélagi ţar sem hann átti lögheimili samkvćmt íbúaskrá ţjóđskrár fjórum vikum fyrir kjördag, 28. mars.

Talnaefni



Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getiđ heimildar.

Nánari upplýsingar veitir Magnús S. Magnússon í síma 528 1014,
netfang magnus.magnusson[hja]hagstofa.is

Athugasemd

   
Nafn Netfang *
   
Hagstofan áskilur sér rétt til ađ fjarlćgja ummćli sem ekki eru talin viđeigandi!

Leitarvél
Byggir á LiSA CMS. Eskill -LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi