FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 31. MAÍ 2021

Vinsamlegast athugið að þessi fréttatilkynning var leiðrétt 31.maí 2021 kl. 12:00 frá upprunalegri útgáfu. Villa var í töflu fyrir framboð hótelherbergja og var alls tölu breytt úr 7.063 í 6.978. Þessi villa var einnig lagfærð í veftöflu.

Greiddar gistinætur á öllum tegundum gististaða í apríl síðastliðnum rúmlega fjórfölduðust samanborið við apríl 2020.

Greiddar gistinætur á öllum gististöðum voru um 92.500 í apríl en þær voru um 20.800 í sama mánuði árið áður. Íslenskar gistinætur voru um 66% gistinátta, eða 61.200, en erlendar 34% eða 31.300. Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru um 66.800, þar af 48.900 á hótelum, og 25.700 á öðrum tegundum skráðra gististaða (farfuglaheimilum, orlofshúsum o.s.frv.)

Framboð hótelherbergja í apríl jókst um 22,2% frá apríl 2020. Aukning var í öllum landshlutum nema á höfuðborgarsvæðinu en þar var 3% samdráttur. Herbergjanýting á hótelum var 13,9% og jókst um 10,3 prósentustig frá fyrra ári.

Gistinætur á hótelum í apríl voru 48.900 og jókst hótelgisting í mánuðinum í öllum landshlutum. Mest var aukningin á Norðurlandi þar sem gistinætur fóru úr 800 í 7.800 á milli ára.

Gistinætur, framboð og nýting á hótelum
  Apríl Maí-apríl
Gistinætur á hótelum20202021%2019-20202020-2021%
Alls9.18148.877432%4.065.447848.670-79%
Höfuðborgarsvæði3.36717.218411%2.260.224256.940-89%
Suðurnes1.9787.787294%354.48969.983-80%
Vesturland og Vestfirðir9544.142334%227.168100.321-56%
Norðurland8277.845849%301.161171.279-43%
Austurland160726354%110.28648.894-56%
Suðurland1.89511.159489%812.119201.253-75%
Þjóðerni
Íslendingar6.17634.834464%401.616578.34644%
Erlendir gestir3.00514.043367%3.663.831270.324-93%
 
  Herbergjafjöldi á hótelum í apríl Herbergjanýting hótela í apríl
Framboð og nýting hótelherbergja20202021%20202021prst
Alls5.7786.97822%3,6%13,9%10,3
Höfuðborgarsvæði2.4352.370-3%3,0%15,2%12,2
Suðurnes54687059%10,0%19,4%9,4
Vesturland og Vestfirðir55268123%3,4%11,1%7,7
Norðurland68989530%2,5%16,1%13,6
Austurland21230142%1,7%5,2%3,5
Suðurland1.3441.86138%3,1%11,7%8,6

Gistinætur Íslendinga voru 34.800, eða 71% af hótelgistinóttum, á meðan erlendar gistinætur voru 14.000 eða 29%.

Á tólf mánaða tímabili frá maí 2020 til apríl 2021 var heildarfjöldi gistinátta á hótelum um 848.700 sem er 79% fækkun frá sama tímabili ári áður. Mest var fækkunin á höfuðborgarsvæðinu eða 89%.

Rétt er að hafa til hliðsjónar að samkomubann vegna kórónuveirufaraldursins var sett á um miðjan mars 2020 og hafði sérstaklega mikil áhrif á gistináttatölur fyrir apríl 2020.

Þar sem landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands liggur niðri, vegna mikillar fækkunar brottfara frá Keflavíkurflugvelli, var ekki unnt að áætla fjölda erlendra gistinátta á stöðum sem miðla heimagistingu í gegnum Airbnb og svipaðar síður.

Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir hótel koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Eins og fyrr greinir koma fáar brottfarir frá Keflavíkurflugvelli í veg fyrir öflun gagna fyrir landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands og liggur hún því niðri þar til aðstæður breytast. Á meðan eru ekki birtar áætlaðar tölur um gistinætur utan hefðbundinnar gistináttaskráningar. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Allar tölur fyrir 2021 eru bráðabirgðatölur nema gistináttatölur hótela þar sem bráðabirgðatölur eru fyrir apríl 2021. Áætlun fyrir aðrar tegundir gististaða en hótel er um þessar mundir háð meiri óvissu en vanalega fyrir tilstilli örra breytinga á framboði og nýtingu og því er rétt að taka þeim tölum með sérstökum fyrirvara þar til endanlegar tölur liggja fyrir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.