FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 05. FEBRÚAR 2007


Gistinóttum á hótelum í desember fjölgaði um 27% milli ára

Gistinætur á hótelum í desember síðastliðnum voru 53.800 en voru 42.300 í sama mánuði árið 2005, sem er fjölgun um 11.500 nætur eða 27%.  Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum.  Aukningin var hlutfallslega mest á Austurlandi þar sem gistinætur nánast tvöfölduðust, fóru úr 900 í 1.700 milli ára.  Á Norðurlandi fjölgaði gistinóttum um 28%, úr 1.500 í 1.900.  Á höfuðborgarsvæðinu  nam fjölgunin 27% í desember, en fjöldi gistinátta fór úr 33.900 í 43.000 milli ára.  Á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða fjölgaði gistinóttum úr 3.800 í 4.600, eða um 22%.  Á Suðurlandi fjölgaði gistinóttum um 14%, úr 2.300 í 2.600. 

Skiptingin milli Íslendinga og útlendinga í desember var þannig að gistinóttum útlendinga fjölgaði um 32% og Íslendinga um 18%.  Útlendingar vega þó þyngra þar sem gistinætur þeirra eru tæp 70% af heildarfjölda gistinátta á hótelum í desember.

Gistirými á hótelum í desembermánuði jókst milli ára.  Fjöldi herbergja fór úr 3.511 í 3.897, 11% aukning og fjöldi rúma úr 7.142 í 7.929, 11% aukning.  Hótel sem opin voru í desember síðastliðnum voru 73 en 68 í sama mánuði árið 2005.

 


Gistinóttum á hótelum allt árið 2006 fjölgaði um 13%
Á árinu 2006 í heild fjölgaði gistinóttum um 13% frá fyrra ári, en gistináttafjöldinn fór úr 1.035.100 í 1.168.900 milli ára.  Fjölgun varð á öllum landsvæðum.  Hlutfallslega varð aukningin mest á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða þar sem gistinóttum fjölgaði um 23%.  Á Norðurlandi nam aukningin 17%, Austurlandi 14%, höfuðborgarsvæðinu 12% og á Suðurlandi 6%.  Fjölgun gistinátta á þessu tímabili skiptist þannig að gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 14% og útlendinga um 13%.   Eins og áður sagði vegur fjölgun gistinátta útlendinga þyngra þar sem gistinætur þeirra eru um 79% af heildarfjölda gistinátta á hótelum þetta tímabil. Sömu sögu er að segja um gistinætur á höfuðborgarsvæðinu, en þær nema um 67% af heildarfjölda gistinátta.

 


Athygli skal vakin á því að hér er átt við gistinætur á hótelum eingöngu, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. 

Tölur fyrir Suðurnes, Vesturland og Vestfirði eru lagðar saman og birtar í einu lagi vegna þess hve gististaðir á Suðurnesjum og Vestfjörðum eru fáir.

Tölur fyrir 2006 eru bráðabirgðatölur.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.