FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 07. JÚLÍ 2008


Gistinætur á hótelum stóðu í stað milli ára
Gistinætur á hótelum í maí síðastliðnum voru 117.300 sem er sambærilegt við maí 2007. Gistinóttum fækkaði á höfuðborgarsvæðinu úr 83.000 í 79.800 eða um 4%. Á Norðurlandi fækkaði gistinóttum um rúmt 1%, úr 9.000 í 8.900, og á Austurlandi voru gistinætur sambærilegar við fyrra ár eða um 4.700.

Gistinóttum fjölgaði umtalsvert á Suðurlandi, úr 10.700 í 13.500, eða rúm 26%. Gistinóttum fjölgaði einnig um rúm 4% á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða, úr 9.900 í 10.300.

Fjölgun gistinátta á hótelum á Suðurlandi í maí má bæði rekja til útlendinga (33%) og Íslendinga (14%). Fækkun gistinátta á öðrum landsvæðum milli ára má eingöngu rekja til útlendinga (-2%).

Gistinóttum á hótelum fyrstu fimm mánuði ársins fjölgaði um tæp 4% milli ára
Gistinætur á hótelum fyrstu fimm mánuði ársins voru 428.000 en voru 412.000 á sama tímabili árið 2007. Fjölgun varð á Suðurlandi um rúm 20%, á höfuðborgarsvæðinu um 4% og á Norðurlandi um 2% milli ára. Gistinóttum fækkaði á öðrum landsvæðum mest á Austurlandi um 13% og á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða um tæp 8%. 

Fjölgun gistinátta fyrstu fimm mánuði ársins nær eingöngu til Íslendinga, 14%. Gistinætur útlendinga standa í stað á milli ára.

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Tölur fyrir 2008 eru bráðabirgðatölur.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.