FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 02. MAÍ 2005

Út er komið ritið Gistiskýrslur 2004 þar sem birtar eru niðurstöður úr gistináttatalningu Hagstofu Íslands fyrir árið 2004.

Þar kemur fram að heildarfjöldi gistinátta var 2.133.630 árið 2004 sem er 7,5% aukning frá árinu 2003. Gistinóttum fjölgaði frá árinu 2003 á hótelum og gistiheimilum (7,3%), heimagististöðum (17,9%), svefnpokagististöðum (12,2%), á tjaldsvæðum (10,6%) og á farfuglaheimilum (6,9%). Gistinóttum fækkaði hins vegar í orlofshúsabyggðum (-3,6%) og í skálum í óbyggðum (-2,1%).   

Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum. Aukningin var hlutfallslega mest aukningin á Suðurnesjum (17,5%), Norðurlandi vestra (15,9%) og á Vesturlandi (11,1%). Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði gistinóttum um 7,8%, á Norðurlandi eystra um 7,3% og á Suðurlandi um 5,5%.  Á Austurlandi nam fjölgunin 4,1% og á Vestfjörðum 4,0%.

Í heftinu eru niðurstöður talningarinnar birtar í töflum, myndum og yfirlitum.



Gistiskýrslur 2004 - útgáfur

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.