FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 18. JANÚAR 2024

Fjöldi starfandi einstaklinga í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi var 32.536 í nóvember 2023 sem er 8% aukning samanborið við nóvember 2022. Á tólf mánaða tímabili frá desember 2022 til nóvember 2023 störfuðu að jafnaði um 31.976 í einkennandi greinum ferðaþjónustu samanborið við 28.296 fyrir sama tímabil ári fyrr.

Gistinætur á hótelum í nóvember 2023 voru 360.774 samanborið við 353.524 í nóvember 2022. Gistinætur erlendra gesta voru 289.077 í nóvember eða 2% fleiri en á sama tíma árið áður. Gistinætur Íslendinga voru 71.697, 1% fleiri en í nóvember 2022. Í desember voru 172.990 brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli í samanburði við 156.976 í desember 2022. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 137.088 samanborið við 114.788 í desember 2022.

Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur gistinætur, fjölda starfandi skv. skrám, skráningar bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferð á hringveginum frá Vegagerðinni og fjölda farþega frá Ferðamálastofu út frá þjóðernum auk talna um farþegaflutninga og flughreyfingar frá ISAVIA.







Talnaefni
Hagvísar í ferðaþjónustu
Farþegar um Keflavíkurflugvöll
Meðal dagleg umferð á stofnvegum eftir mánuðum
Tekjur af erlendum ferðamönnum

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.