FRÉTT FYRIRTÆKI 28. OKTÓBER 2016

Nýskráningar einkahlutafélaga í september 2016 voru 240. Síðustu 12 mánuði, frá október 2015 til september 2016, hefur nýskráningum einkahlutafélaga fjölgað um 19% í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 2.689 ný einkahlutafélög skráð á tímabilinu, borið saman við 2.255 á fyrri 12 mánuðum. Hlutfallsleg fjölgun nýskráninga var mest í flutningum og geymslu, þar sem þeim fjölgaði úr 39 í 65, eða um 67% á síðustu 12 mánuðum. Meðal annarra greina þar sem nýskráningum hefur fjölgað má nefna leigustarfsemi og ýmsa sérhæfða þjónustu þar sem fjölgunin var úr 169 í 249 nýskráningar (47%), fasteignaviðskipti þar sem nýskráningum fjölgaði úr 318 í 413 (30%) og byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð þar sem þeim fjölgaði úr 272 í 353 (30%). Nýskráningum fækkaði í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum um 4% frá fyrra tímabili (úr 283 í 272).

Í september 2016 voru 60 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta. Gjaldþrotum fyrirtækja síðustu 12 mánuði, frá október 2015 til september 2016, hefur fjölgað um 22% í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 880 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu, borið saman við 722 á fyrra tímabili. Á síðasta 12 mánaða tímabili hefur gjaldþrotum fjölgað hlutfallslega mest í fjármála- og vátryggingastarfsemi, þar sem þeim fjölgaði úr 45 í 71 frá fyrra tímabili (58%). Einnig var yfir 50% fjölgun gjaldþrota í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum, úr 123 í 190 (54%), og í upplýsingum og fjarskiptum, þar sem þeim fjölgaði úr 37 í 56 frá fyrra tímabili (51%). Hlutfallslega fækkaði gjaldþrotum mest í fasteignaviðskiptum, úr 91 í 77 (15%), og í rekstri gististaða og veitingarekstri, þar sem þeim fækkaði úr 60 í 52 frá fyrra tímabili (13%).

Nýskráningar og gjaldþrot
  September   Október–september  
  2016 2015 % 2015–2016 2014–2015 %
Nýskráningar ehf.            
Alls 240 200 20 2.689 2.255 19
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar   2 2 0 95 86 10
C Framleiðsla  9 11 -18 102 93 10
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð   34 27 26 353 272 30
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum   30 28 7 272 283 -4
H Flutningar og geymsla   5 1 400 65 39 67
I Rekstur gististaða og veitingarekstur   14 12 17 174 158 10
J Upplýsingar og fjarskipti  18 14 29 191 172 11
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi   34 21 62 384 326 18
L Fasteignaviðskipti   40 42 -5 413 318 30
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi   22 15 47 239 214 12
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta   22 18 22 249 169 47
Aðrar atvinnugreinar 10 9 11 152 125 22
             
Gjaldþrot            
Alls 60 49 22 880 722 22
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar   1 2 -50 24 23 4
C Framleiðsla  8 2 300 50 44 14
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð   5 14 -64 155 143 8
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum   15 8 88 190 123 54
H Flutningar og geymsla   1 1 0 23 24 -4
I Rekstur gististaða og veitingarekstur   1 9 -89 52 60 -13
J Upplýsingar og fjarskipti  5 1 400 56 37 51
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi   7 2 250 71 45 58
L Fasteignaviðskipti   5 5 0 77 91 -15
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi   8 1 700 84 60 40
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta   1 2 -50 44 35 26
Aðrar atvinnugreinar 3 2 50 54 37 46

Talnaefni:
  Nýskráningar
  Gjaldþrot

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.