FRÉTT LAUN OG TEKJUR 26. MARS 2008

Nýjum töflum hefur verið bætt við á vef Hagstofu Íslands sem innihalda annars vegar regluleg laun á almennum vinnumarkaði eftir atvinnugrein og kyni og hins vegar regluleg laun eftir starfsstétt og kyni. Í þessum töflum eru birt regluleg laun fyrir tvo hópa;  fullvinnandi og launamenn í hlutastarfi. Laun starfsfólks í hlutastarfi eru umreiknuð miðað við fullt starf. Að auki eru birt regluleg laun allra launamanna á almennum vinnumarkaði.

Í janúar 2008 birti Hagstofan meðallaun fyrir fullvinnandi launamenn á almennum vinnumarkaði 1998-2006.  Í töflum sem innihalda laun fullvinnandi launamanna eru, auk reglulegra launa, birt launahugtökin regluleg heildarlaun og heildarlaun. Í töflunum er einnig birtur fjöldi greiddra stunda.

Við samanburð á launum fullvinnandi launamanna og í hlutastarfi ber að hafa í huga að víða eru í gildi svokallaðir fastlaunasamningar þar sem ekki er greitt sérstaklega fyrir yfirvinnu. Því er yfirvinna hluti af reglulegum launum ýmissa hópa fullvinnandi launamanna. Fastlaunasamningar eru til staðar í öllum starfsstéttum en algengastir hjá stjórnendum, sérfræðingum og skrifstofufólki.

Tölur vegna ársins 2007 verða gefnar út 16. apríl 2008 samkvæmt birtingaráætlun.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.