Árið 2013 létust 2.154 einstaklingar sem búsettir voru á Íslandi, 1.091 karl og 1.063 kona. Dánartíðni var 6,7 látnir á hverja 1.000 íbúa og hækkaði frá árinu 2012.

Ungbarnadauði á Íslandi var 1,8 barn af hverjum 1.000 lifandi fæddum árið 2013 en var 1,1 börn af hverjum 1.000 lifandi fæddum árið 2012.

Árið 2013 gátu nýfæddir drengir vænst þess að ná að meðaltali 80,8 ára aldri en stúlkur 83,7 árum. Á fimm ára tímabili, 2006-2010 var meðalævi karla 79,6 ár en kvenna 83,3 ár.

Ungbarnadauði lægstur á Íslandi meðal Evrópuþjóða 2012
Árið 2012 var ungbarnadauði á Íslandi 1,1 af 1.000 lifandi fæddum. Hvergi í Evrópu var ungbarnadauði jafn lágur og hér árið 2012. Næstir Íslandi komu Slóvenar en þar var ungbarnadauði 1,6 af 1.000 lifandi fæddum. Annars staðar á Norðurlöndum var ungbarnadauði á bilinu 2,4-3,4. Heildarmeðaltal Evrópusambandsríkja ásamt EES þjóðum var 3,8 fyrir árið 2012. Tíðastur var ungbarnadauði í Tyrklandi (11,6) og í Kósóvó eða 11,4 af hverjum 1,000 lifandi fæddum.

Íslenskir karlar langlífastir í Evrópu 2012
Lífslíkur íslenskra karla hafa batnað mjög á undanförnum árum. Frá árinu 2000 hafa þeir bætt við sig rúmlega tveimur árum í meðalævilengd. Árið 2012 var meðalævilengd íslenskra karla 81,6 ár og skipuðu þeir fyrsta sætið meðal Evrópuþjóða það ár. Næst lengst geta karlar búist við að lifa að jafnaði við fæðingu í Sviss (80,6) og Svíþjóð (79,9). Styst er meðalævilengd evrópskra karla í Litháen (68,4), Lettlandi (68,9) og Búlgaríu (70,9 ár).

Íslenskar konur í sjötta sæti
Lengi vel voru lífslíkur íslenskra kvenna hæstar í heiminum en þær hafa dregist nokkuð afturúr stallsystrum sínum í Evrópu á þessari öld. Ástæðan fyrir því er hraðari aukning ævilengdar í nokkrum Evrópulöndum. Árið 2012 var meðalævilengd íslenskra kvenna 84,3 ár og skipuðu þær sjötta sætið meðal Evrópuþjóða. Elstar evrópskra kvenna verða konur á Spáni (85,5 ár), Frakklandi (85,4 ár) og Liechtenstein (85,2 ár). Meðalævilengd evrópskra kvenna er styst í Makedóníu (76,9 ár), Serbíu (77,5 ár) og Búlgaríu (77,9 ár).
 

Skýringar
Um er að ræða bráðabirgðatölur yfir dána fyrir árið 2013. Þær verða endurskoðaðar í byrjun september 2014.

Ungbarnadauði er alþjóðleg stöðluð vísitala á dánartíðni barna á fyrsta aldursári. Hún er reiknuð með því að deila fjölda látinna á fyrsta aldursári með fjölda lifandi fæddra í árgangi og margfalda niðurstöðuna með 1.000.

Við samanburð á tölum um ævilengd í Evrópu er rétt að geta þess að íslensku tölurnar fyrir 2012 byggja á útreikningum Eurostat.

Talnaefni