Sé hlutfall íslenskra ríkisborgara sem flytja til og frá landinu á mismunandi aldursbili (af heildarfjölda aðfluttra og brottfluttra) árið 2015 borið saman við sambærilegt hlutfall áranna 1986 til 2014 fæst niðurstaðan að engar markverðar breytingar hafi átt sér stað árið 2015. Aukinn fjöldi brottfluttra er ekki umfram það sem telja má eðlilega sveiflu miðað við fyrri ár. Þessi niðurstaða á við hvort sem horft er til búferlaflutninga hjá einstaklingum eða kjarnafjölskyldum.
Ekki sést neinn munur sé horft til þeirra sem eru yngri en 40 annars vegar og eldri en 45 hins vegar. Þess þá heldur sjást engar vísbendingar um breytta búferlaflutninga þeirra sem eru 20–24 ára eða 25–29 ára. Einu marktæku niðurstöðurnar taka til aldurshópsins 40–44 ára sem eru hreyfanlegri síðustu ár (2009–2015) en áður hefur sést. Árið 2015 fluttu marktækt fleiri í þessum aldurshópi til Íslands en áður og lítillega fleiri fluttu brott. Eftir hrunið 2008, einkum frá árinu 2010, má almennt greina meiri hreyfanleika fólks á aldrinum 40–60 ára bæði í brottflutningi og aðflutningi eins og sést á myndum.
Breytileiki flutningsjöfnuðar hjá einstaklingum og fjölskyldum, milli tveggja samliggjandi ára, sýnir ekki marktækar breytingar sé horft til 12 mánaða (1. október til 30. september) árin 1971–2015. Í því samhengi eru árin 1989 og 2009 frábrugðin sé horft til einstaklinga en aðeins 2009 sé horft til fjölskyldna. Þar eru greinileg áhrif efnahagshrunsins 2008.
Gögn um brottflutta og aðflutta íslenska ríkisborgara (1971–2015) sýna sterka fylgni við líkan sem inniheldur fjölda útskrifaðra stúdenta, þróun vergrar landsframleiðslu og atvinnuleysisstig. Líkanið var þróað vegna mannfjöldaspár Hagstofunnar og er lýst í greinargerð sem gefin var út samhliða spánni. Líkanið sýnir þó einungis fylgni en gefur ekki upplýsingar um orsök né heldur er það tæmandi. Aðrir þættir gætu hugsanlega varpað frekara ljósi á flutningsjöfnuð, t.d. menntun og starf, en þau gögn eru ekki tiltæk í dag.
Hagstofan hefur unnið greininguna sem hér um ræðir á lýðfræðigögnum sem tiltæk eru um kyn, aldur, fjölskyldustöðu og ríkisfang.
Migration of Icelandic citizens in the first three quarters of 2015 — Hagtíðindi: Greinargerðir