FRÉTT MANNFJÖLDI 01. FEBRÚAR 2021

Í lok 4. ársfjórðungs 2020 bjuggu 368.590 manns á Íslandi, 188.900 karlar og 179.680 konur. Landsmönnum fjölgaði um 570 á ársfjórðungnum eða um 0,2%. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 236.520 manns en 132.070 utan þess.

Flutningsjöfnuður erlendra ríkisborgara neikvæður
Á 4. ársfjórðungi 2020 fæddust 1.080 börn en 630 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 90 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Aðfluttir með íslenskt ríkisfang voru 150 umfram brottflutta en brottfluttir erlendir ríkisborgarar voru 60 fleiri en þeir sem fluttust til landsins. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Flestir erlendir ríkisborgarar fluttust til Póllands
Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 100 manns á 4. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 210 íslenskir ríkisborgarar af 390 alls. Af þeim 1.530 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 590 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (170), Noregi (70) og Svíþjóð (80), samtals 320 manns af 540. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 280 til landsins af alls 1.470 erlendum innflytjendum. Rúmenía kom næst en þaðan fluttust 90 erlendir ríkisborgarar til landsins. Í lok fjórða ársfjórðungs bjuggu 51.180 erlendir ríkisborgarar á Íslandi eða 13,9% af heildarmannfjölda.

Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 4. ársfjórðungi 2020
 AllsKarlarKonur
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungs368.590188.900179.680
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungs368.010188.790179.220
Breyting570110460
Fæddir1.080550530
Dánir630330300
Aðfluttir umfram brottflutta90-190280
Aðfluttir2.0101.040970
Brottfluttir1.9101.220690
Allar tölur eru námundaðar að næsta tug ef mannfjöldinn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í samtölur vegna námundunarinnar.

Mannfjöldinn er reiknaður eins og hann stendur samkvæmt þjóðskrá.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1030 , netfang mannfjoldi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.