FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 17. MAÍ 2010


Afli á föstu verði
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum aprílmánuði, metinn á föstu verði, var 16,5% minni en í apríl 2009. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 14,7% miðað við sama tímabil 2009, sé hann metinn á föstu verði.

Afli í tonnum
Aflinn nam alls 79.680 tonnum í apríl 2010 samanborið við 99.267 tonn í sama mánuði árið áður.

Botnfiskafli dróst saman um tæp 6.000 tonn frá apríl 2009 og nam 34.900 tonnum. Þar af nam þorskaflinn tæpum 12.900 tonnum, sem er samdráttur um 4.000 tonn frá fyrra ári. Ýsuaflinn nam tæpum 5.200 tonnum, sem er um 2.100 tonnum minni afli en í apríl 2009. Karfaaflinn dróst saman um tæp 400 tonn samanborið við apríl 2009 og nam rúmum 6.500 tonnum. Um 3.500 tonn veiddust af ufsa, sem er um 500 tonnum minni afli en í apríl 2009. Um 1.200 tonna aukning var í öðrum botnfiskafla milli ára og nam hann rúmum 6.700 tonnum. Mest aukning var þar í veiði á blálöngu og keilu.

Afli uppsjávartegunda nam tæpum 40.700 tonnum, sem er um 14.700 tonnum minni afli en í apríl 2009. Af uppsjávartegundum veiddist nær eingöngu kolmunni í mánuðinum, líkt og undanfarin ár.

Flatfiskaflinn var rúm 2.000 tonn í apríl 2010 líkt og árið áður. Skel- og krabbadýraaflinn nam 914 tonnum samanborið við 643 tonn í apríl 2009 og annar afli nam tæpum 1.300 tonnum.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2008. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.