FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 22. NÓVEMBER 2011


Aflaverðmæti 98,8 milljarðar króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 98,8 milljörðum króna fyrstu átta mánuði ársins 2011 samanborið við 92,4 milljarða á sama tímabili 2010. Aflaverðmæti hefur því aukist um 6,4 milljarða króna eða 6,9% á milli ára.

Aflaverðmæti botnfisks fyrstu átta mánuði ársins nam 60,5 milljörðum króna og dróst saman um 5,8% sé miðað við sama tímabili árið 2010. Verðmæti þorskafla var um 28,9 milljarðar og dróst saman um 4% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 7,6 milljörðum og dróst saman um 31,8%, en verðmæti karfaaflans nam 8,4 milljörðum, sem er 9,9% aukning miðað við sama tímabil árið  2010. Verðmæti ufsaaflans jókst um 1,9% milli ára í 5,7 milljarða.

Verðmæti flatfiskafla nam tæpum 6,8 milljörðum króna fyrstu átta mánuði ársins sem er 2,9% samdráttur frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 48,2% milli ára og nam 28,5 milljörðum.

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 43,2 milljörðum króna og jókst um 14,9% frá árinu 2010. Aflaverðmæti sjófrystingar voru 36,8 milljarðar sem er 10% aukning frá fyrra ári. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands nam um 13,5 milljörðum króna, sem er nær sama upphæð og í janúar-ágúst 2010.

Verðmæti afla janúar-ágúst 2011      
Milljónir króna Ágúst Janúar–ágúst Breyting frá
    2010 2011 2010 2011 fyrra ári í %
Verðmæti alls 12.603,4 15.259,6 92.362,0 98.750,6 6,9
Botnfiskur 7.503,9 5.838,4 64.172,1 60.477,3 -5,8
Þorskur 3.108,0 2.548,2 30.106,8 28.894,2 -4,0
Ýsa 1.622,8 850,3 11.075,8 7.558,8 -31,8
Ufsi 1.282,8 814,1 5.600,8 5.708,4 1,9
Karfi 816,9 889,8 7.619,5 8.373,0 9,9
Úthafskarfi 0,0 0,0 3.649,0 4.027,9 10,4
Annar botnfiskur 673,3 736,0 6.120,1 5.915,1 -3,4
Flatfisksafli 643,6 388,7 6.983,9 6.781,0 -2,9
Uppsjávarafli 4.142,8 8.724,6 19.202,5 28.461,1 48,2
Síld 1.723,0 1.313,7 4.209,1 3.557,2 -15,5
Loðna 0,0 0,0 2.494,4 8.683,6 248,1
Kolmunni 46,7 13,7 3.181,4 166,5 -94,8
Annar uppsjávarafli 2.373,1 7.397,2 9.317,6 16.053,8 72,3
Skel- og krabbadýraafli 307,0 275,7 1.906,7 2.104,7 10,4
Rækja 174,9 128,3 1.172,9 1.406,4 19,9
Annar skel- og krabbad.afli 132,2 147,3 733,7 698,3 -4,8
Annar afli 6,1 32,3 96,8 926,5 856,8

Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar-ágúst 2011    
Milljónir króna Ágúst Janúar–ágúst Breyting frá
    2010 2011 2010 2011 fyrra ári í %
Verðmæti alls 12.603,4 15.259,6 92.362,0 98.750,6 6,9
Til vinnslu innanlands 4.496,4 5.372,0 37.611,0 43.225,0 14,9
Í gáma til útflutnings 673,9 604,2 6.502,5 4.413,2 -32,1
Landað erlendis í bræðslu 0,0 0,0 83,6 145,5 74,1
Sjófryst 5.926,0 7.547,0 33.434,8 36.792,8 10,0
Á markað til vinnslu innanlands 1.361,8 1.666,8 13.551,1 13.543,8 -0,1
Sjófryst til endurvinnslu innanl. 60,4 0,3 206,1 78,0 -62,1
Selt úr skipi erlendis 0,0 0,0 0,0 0,0
Fiskeldi 9,2 0,0 72,7 0,0
  Aðrar löndunartegundir 75,7 69,2 900,1 552,2 -38,7

Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar-ágúst 2011
Milljónir króna Ágúst Janúar–ágúst Breyting frá
    2010 2011 2010 2011 fyrra ári í %
Verðmæti alls 12.603,4 15.259,6 92.362,0 98.750,6 6,9
Höfuðborgarsvæði 2.221,2 2.791,5 17.384,3 18.445,0 6,1
Suðurnes 2.007,7 1.947,1 15.576,8 16.341,0 4,9
Vesturland 188,5 233,1 4.175,8 4.810,8 15,2
Vestfirðir 618,4 686,2 4.767,1 5.133,8 7,7
Norðurland vestra 1.077,1 750,4 6.706,4 6.490,8 -3,2
Norðurland eystra 2.471,3 3.616,2 14.076,3 16.077,3 14,2
Austurland 1.936,5 2.587,0 12.803,5 14.295,1 11,6
Suðurland 1.467,6 2.043,9 10.390,1 12.598,2 21,3
  Útlönd 615,0 604,2 6.481,4 4.558,7 -29,7

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.