FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 30. JÚLÍ 2010


Aflaverðmæti 45,6 milljarðar króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 45,6 milljörðum króna á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2010 samanborið við 35 milljarða á sama tímabili 2009. Aflaverðmæti hefur því aukist um 10,6 milljarða eða 30,2% á milli ára.

Aflaverðmæti botnfisks var í lok apríl orðið 34,9 milljarðar og jókst um 25,5% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam 27,8 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 18,4 milljarðar og jókst um 27,7% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 6 milljörðum og jókst um 9,8%, en verðmæti karfaaflans nam um 5,3 milljörðum, sem er 26% aukning frá árinu 2009. Verðmæti ufsaaflans jókst um 38,6% milli ára og nam tæpum 2,1 milljarði fyrstu fjóra mánuði ársins.

Verðmæti flatfiskafla nam tæpum 3,1 milljarði króna í janúar til apríl 2010, sem er 24,1% aukning frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 61,7% milli ára og nam rúmum 7,3 milljörðum.
 
Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 20,3 milljörðum króna og jókst um 38,2% frá árinu 2009. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 42,6% milli ára og var um 7,4 milljarðar. Aflaverðmæti sjófrystingar var tæpir 14 milljarðar sem er 46,3% aukning milli ára.

Verðmæti afla janúar-apríl 2010
Milljónir króna Apríl Janúar–apríl Breyting frá
    2009 2010 2009 2010 fyrra ári í %
Verðmæti alls 8.431,7 9.793,4 35.038,4 45.627,7 30,2
Botnfiskur 6.328,3 7.345,8 27.806,6 34.900,7 25,5
Þorskur 2.756,1 3.152,5 14.418,7 18.414,6 27,7
Ýsa 1.421,8 1.261,8 5.481,7 6.020,0 9,8
Karfi 1.144,8 1.436,9 4.213,2 5.310,0 26,0
Ufsi 414,2 605,1 1.492,6 2.068,9 38,6
Annar botnfiskur 591,5 889,5 2.200,4 3.087,2 40,3
Flatfisksafli 756,9 887,3 2.467,0 3.061,0 24,1
Uppsjávarafli 1.216,2 1.403,6 4.541,2 7.342,8 61,7
Síld 3,2 0,0 892,9 326,0 -63,5
Loðna 0,0 0,0 412,3 2.494,4 504,9
Kolmunni 1.212,7 1.401,0 2.383,5 2.086,9 -12,4
Annar uppsjávarafli 0,3 2,6 852,5 2.435,6 185,7
Skel- og krabbadýraafli 126,8 142,4 208,8 290,5 39,1
Rækja 77,1 99,5 157,1 247,3 57,4
Annar skel- og krabbad.afli 49,7 42,9 51,7 43,2 -16,5
Annar afli 3,6 14,3 14,8 32,6 120,2

Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar-apríl 2010
Milljónir króna Apríl Janúar–apríl Breyting frá
    2009 2010 2009 2010 fyrra ári í %
Verðmæti alls 8.431,7 9.793,4 35.038,4 45.627,7 30,2
Til vinnslu innanlands 2.946,6 3.921,4 14.721,7 20.338,7 38,2
Í gáma til útflutnings 1.171,6 830,3 4.399,9 3.451,2 -21,6
Landað erlendis í bræðslu 85,2 0,0 195,2 0,0
Sjófryst 2.855,2 3.527,5 9.527,3 13.940,6 46,3
Á markað til vinnslu innanlands 1.114,2 1.387,3 5.192,8 7.405,9 42,6
Á markað, í gáma til útflutnings* 113,3 426,7
Sjófryst til endurvinnslu innanl. 1,2 1,6 5,0 51,7 925,4
Selt úr skipi erlendis 63,3 0,0 263,3 0,0
Fiskeldi 6,9 4,1 25,2 20,6 -18,3
  Aðrar löndunartegundir 74,2 121,1 281,3 418,9 48,9
*Fyrir árið 2010 er ekki hægt að birta sundurliðaðar tölur um afla  sem seldur er í gegnum uppboðsmarkað innanlands og fer síðan í gám til útflutnings (og er unninn í útlöndum).

Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar-apríl 2010
Milljónir króna Apríl Janúar–apríl Breyting frá
    2009 2010 2009 2010 fyrra ári í %
Verðmæti alls 8.431,7 9.793,4 35.038,4 45.627,7 30,2
Höfuðborgarsvæði 1.628,1 2.236,7 5.984,5 8.831,2 47,6
Suðurnes 1.401,4 1.658,9 6.744,2 8.330,4 23,5
Vesturland 355,0 491,6 2.360,9 2.832,6 20,0
Vestfirðir 379,7 512,8 1.803,2 2.305,4 27,8
Norðurland vestra 519,9 586,3 1.824,5 2.825,8 54,9
Norðurland eystra 1.251,6 1.284,6 4.979,4 6.164,9 23,8
Austurland 1.038,9 1.240,5 3.686,4 5.558,2 50,8
Suðurland 575,6 951,6 3.098,2 5.328,2 72,0
  Útlönd 1.281,6 830,3 4.557,0 3.451,0 -24,3

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.