FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 16. JANÚAR 2009


Aflaverðmæti 80 milljarðar króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 79,7 milljörðum króna á fyrstu tíu mánuðum ársins 2008 samanborið við 68,9 milljarða á sama tímabili árið 2007. Aflaverðmæti hefur aukist um 10,7 milljarða eða 15,6% á milli ára. Aflaverðmæti í október nam 9,3 milljörðum miðað við 6,1 milljarð í október 2007.

Aflaverðmæti botnfisks frá janúar til október 2008 nam 56,6 milljörðum og jókst um 9,6% miðað við sama tímabil árið 2007. Verðmæti þorskafla var 26 milljarðar og jókst um 3,4% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 12,8 milljörðum, jókst um 7,8% og verðmæti karfaaflans nam 6,9 milljörðum sem er tæp 30% aukning frá sama tímabili árið 2007. Verðmæti ufsaaflans jókst einnig umtalsvert, nam tæpum 5 milljörðum sem er 40,5% aukning miðað við fyrstu tíu mánuði ársins 2007.

Verðmæti flatfiskafla janúar til október nam 4,9 milljörðum og jókst um 29,6% frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla nam 17,1 milljarði sem er 35,2% aukning miðað við fyrstu tíu mánuði ársins 2007. Verðmæti síldaraflans janúar til október nam tæpum 8 milljörðum sem er 107,5% aukning frá sama tímabili árið 2007. Verðmæti makríls jókst einnig mikið á milli ára, nam 4,6 milljörðum samanborið við 1,6 milljarð fyrstu tíu mánuði ársins 2007.
 
Verðmæti afla, sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 30,3 milljörðum króna sem er aukning um 6,3% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands dróst saman um 1,7% og nam 10,9 milljörðum fyrstu tíu mánuði ársins. Aflaverðmæti sjófrystingar nam 26 milljörðum, jókst um 27,7% og verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 9,8 milljörðum sem er 36,1% aukning frá sama tímabili árið 2007.

Verðmæti afla janúar-október 2008    
Milljónir króna Október Janúar–október Breyting frá
    2007 2008 2007 2008 fyrra ári í %
             
Verðmæti alls 6.136,5 9.273,7 68.976,3 79.703,2 15,6
             
Botnfiskur 4.752,3 6.918,6 51.628,2 56.601,8 9,6
  Þorskur 2.081,9 2.525,8 25.179,9 26.039,8 3,4
  Ýsa 1.447,0 1.268,5 11.915,9 12.849,6 7,8
  Ufsi 456,5 532,4 3.553,2 4.992,9 40,5
  Karfi 346,0 1.789,9 5.293,2 6.865,1 29,7
  Úthafskarfi 4,6 0,0 1.835,6 921,3 -49,8
  Annar botnfiskur 416,2 801,9 3.850,4 4.933,2 28,1
Flatfiskur 249,9 377,5 3.779,9 4.897,1 29,6
Uppsjávarafli 1.119,2 1.953,3 12.647,9 17.104,5 35,2
  Síld 1.108,5 1.940,2 3.836,5 7.961,6 107,5
  Loðna 0,0 0,0 4.247,2 1.845,5 -56,5
  Kolmunni 6,7 10,4 3.002,8 2.718,3 -9,5
  Annar uppsjávarafli 3,9 2,7 1.561,5 4.579,1 193,3
Skel- og krabbadýraafli 15,2 18,2 918,8 1.063,6 15,8
  Rækja 6,7 1,7 229,0 259,9 13,5
  Annar skel- og krabbad.afli 8,4 16,5 689,8 803,7 16,5
Annar afli 0,0 6,0 1,5 36,2 2.305,1
Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar-október 2008  
Milljónir króna Október Janúar–október Breyting frá
    2007 2008 2007 2008 fyrra ári í %
             
Verðmæti alls 6.136,5 9.273,7 68.976,3 79.703,2 15,6
             
  Til vinnslu innanlands 2.057,0 2.728,8 28.546,1 30.336,8 6,3
  Í gáma til útflutnings 747,7 1.381,3 7.227,1 9.833,3 36,1
  Landað erlendis í bræðslu 16,6 146,6 111,1 444,3 300,0
  Sjófryst 2.212,8 3.540,0 20.372,3 26.009,9 27,7
  Á markað til vinnslu innanlands 873,8 1.208,1 11.080,0 10.893,5 -1,7
  Á markað, í gáma til útflutnings 153,5 221,6 1.073,4 1.322,4 23,2
  Sjófryst til endurvinnslu innanl. 55,8 4,4 135,2 187,6 38,8
  Selt úr skipi erlendis 0,0 0,0 108,3 33,4 -69,1
  Fiskeldi 2,5 2,8 46,2 70,9 53,3
  Aðrar löndunartegundir 16,9 40,0 276,6 571,0 106,4
Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar-október 2008
Milljónir króna Október Janúar–október Breyting frá
    2007 2008 2007 2008 fyrra ári í %
             
Verðmæti alls 6.136,5 9.273,7 68.976,3 79.703,2 15,6
             
  Höfuðborgarsvæði 1.078,0 1.738,7 12.235,6 13.087,2 7,0
  Suðurnes 1.034,7 1.575,8 12.624,9 14.038,8 11,2
  Vesturland 207,4 260,4 3.546,6 3.480,7 -1,9
  Vestfirðir 434,7 499,1 3.590,1 3.675,2 2,4
  Norðurland vestra 424,8 653,1 4.233,1 4.758,0 12,4
  Norðurland eystra 950,3 1.110,1 9.825,8 11.141,1 13,4
  Austurland 772,9 1.217,2 9.319,5 11.959,0 28,3
  Suðurland 505,7 731,7 6.415,3 7.550,0 17,7
  Útlönd 728,0 1.487,7 7.185,5 10.013,1 39,4

Þessar upplýsingar byggjast á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2008 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki tölum fyrir árið 2007. Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.