Landsframleiðslan á 2. ársfjórðungi 2017 jókst að raungildi um 3,4% frá sama ársfjórðungi fyrra árs. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, um 6,7%. Einkaneysla jókst um 9,5%, samneysla um 2,8% og fjárfesting um 5,8%. Útflutningur jókst um 8,0% á sama tíma og innflutningur jókst um 16,2%. Helstu drifkraftar hagvaxtar er einkaneysla ásamt fjármunamyndun og samneyslu. Árstíðaleiðrétt landsframleiðsla dróst saman að raungildi um 1,1% frá 1. ársfjórðungi 2017.
Landsframleiðslan á fyrstu sex mánuðum ársins 2017 jókst um 4,3% að raungildi borið saman við fyrstu sex mánuði ársins 2016. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld um 5,2%. Einkaneysla jókst um 8,3%, samneysla um 2,2% og fjárfesting um 5,2%. Útflutningur jókst um 5,2% og innflutningur um 10%.
Landsframleiðslan á 2. ársfjórðungi 2017 - Hagtíðindi
Talnaefni (sjá Landsframleiðsla eftir ársfjórðungum 1997-2017)