FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 08. DESEMBER 2015

Landsframleiðslan á fyrstu níu mánuðum ársins 2015 jókst um 4,5% að raungildi borið saman við fyrstu níu mánuði ársins 2014. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, um 6,2%. Einkaneysla jókst um 4,4%, samneysla um 0,9% og fjárfesting um 15,8%. Útflutningur jókst um 7,4 og innflutningur nokkru meira, eða um 10,9%.

Landsframleiðslan á 3. ársfjórðungi 2015, án árstíðaleiðréttingar, jókst um 2,6% frá sama ársfjórðungi fyrra árs en árstíðaleiðrétt landsframleiðsla jókst um 0,7% frá 2. ársfjórðungi 2015.

Landsframleiðslan á 3. ársfjórðungi 2015 - Hagtíðindi

Talnaefni (sjá Landsframleiðsla eftir ársfjórðungum 1997-2015)

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang thjodhagsreikningar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.