FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 31. OKTÓBER 2007


Vöruskiptajöfnuður
Í septembermánuði voru fluttar út vörur fyrir 18,1 milljarð króna og inn fyrir 28,0 milljarða króna fob (30,5 milljarða króna cif). Vöruskiptin í september, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 9,9 milljarða króna. Í september 2006 voru vöruskiptin óhagstæð um 7,2 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu níu mánuðina 2007 voru fluttar út vörur fyrir 194,6 milljarða króna en inn fyrir 272,2 milljarða króna fob (295,8 milljarð króna cif). Halli var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 77,6 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um tæpa 111 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 33,4 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Fyrstu níu mánuði ársins 2007 var verðmæti vöruútflutnings 14,9 milljörðum eða 8% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 47% alls útflutnings og var verðmæti þeirra tæplega 1% minna en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 43% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 28% meira en árið áður. Aukningu útflutnings má einna helst rekja til aukins álútflutnings en einnig varð aukning í útflutningi á kísiljárni. Á móti kom samdráttur í sölu á skipum og flugvélum og lyfjum og lækningatækjum.

Innflutningur
Fyrstu níu mánuði ársins 2007 var verðmæti vöruinnflutnings 18,4 milljörðum eða 6% minna á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Mestur varð samdráttur í innflutningi á flugvélum og fjárfestingarvöru en á móti kom aukning í innflutningi á mat- og drykkjarvöru og annarri  neysluvöru.

Vöruskiptin við útlönd september 2007
Millj. kr á gengi ársins 2007 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %  Jan.-september
September  Janúar-september
  2006 2007 2006 2007
Útflutningur alls fob 24.805 18.110 179.717 194.599 8,3
Innflutningur alls fob 32.032 28.043 290.687 272.243 -6,4
Vöruskiptajöfnuður -7.227 -9.933 -110.970 -77.644 ·

Verðmæti útflutnings og innflutnings í september 2006 og 2007
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-september
September Janúar-september
  2006 2007 2006 2007
Útflutningur alls fob 25.357,9 18.110,0 182.416,5 194.598,7 8,3
Sjávarafurðir 11.328,0 8.592,6 94.281,1 92.206,1 -0,7
Landbúnaðarvörur 405,1 262,0 2.755,1 2.290,1 -15,6
Iðnaðarvörur 9.229,9 8.280,7 66.634,3 83.859,8 27,7
Aðrar vörur 4.394,9 974,7 18.746,1 16.242,7 -12,1
Innflutningur alls fob 32.746,2 28.043,3 295.053,4 272.242,9 -6,4
Matvörur og drykkjarvörur 1.894,6 2.109,8 16.347,9 18.592,3 15,4
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 7.610,4 6.864,7 73.819,2 72.087,2 -0,9
Eldsneyti og smurolíur 6.026,5 3.862,6 27.206,2 25.870,1 -3,5
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 6.294,5 5.598,2 73.418,3 65.148,6 -9,9
Flutningatæki 6.125,4 4.074,0 63.633,8 46.162,0 -26,4
Neysluvörur ót.a. 4.758,6 5.522,0 40.307,3 44.137,0 11,1
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 36,3 11,9 320,8 245,7 -22,3
Vöruskiptajöfnuður -7.388,3 -9.933,3 -112.636,9 -77.644,2 ·


¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 1,5% lægra mánuðina janúar–september 2007 en sömu mánuði fyrra árs.

Í september 2007 var meðalverð erlends gjaldeyris 2,2% lægra en í september árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út í febrúar næsta ár.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.