FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 08. APRÍL 2024

Fluttar voru út vörur fyrir 64,2 milljarða króna fob í mars 2024 og inn fyrir 97,5 milljarða cif (92,2 milljarða króna fob) samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í mars, reiknuð á fob/cif-verðmæti, voru því óhagstæð um 33,3 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 28,2 milljarða króna í mars 2023 á gengi hvors árs fyrir sig. Vöruskiptajöfnuðurinn í mars 2024 var því 5,1 milljarði óhagstæðari en á sama tíma fyrir ári. Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 376,8 milljarða króna sem er 55,3 milljörðum króna óhagstæðara en á tólf mánaða tímabili ári fyrr.

Verðmæti útflutnings dróst saman um 11% á 12 mánaða tímabili
Verðmæti vöruútflutnings í mars 2024 var 25,3 milljörðum króna minna (28%) en í mars 2023, fór úr 89,5 milljörðum króna í 64,2 milljarða.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili var 915,8 milljarðar króna og dróst saman um 110,9 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 11% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 53% alls vöruútflutnings en verðmæti þeirra minnkaði um 15% samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir voru 38% alls vöruútflutnings en verðmæti þeirra dróst saman um 7% í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr.

Verðmæti vöruinnflutnings dróst saman um 4% á tólf mánaða tímabili
Verðmæti vöruinnflutnings nam 97,5 milljörðum króna í mars 2024 samanborið við 117,7 milljarða í mars 2023 og dróst því saman um 20,1 milljarð króna eða um 17%.

Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili var 1.292,7 milljarðar króna og minnkaði um 55,6 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr á gengi hvors árs fyrir sig. Í stærri vöruflokkum er verðmætaaukningin mest í flutningatækjum og mat- og drykkjarvörum. Á móti kemur samdráttur í verðmæti innflutnings á hrávörum og rekstrarvörum og eldsneyti og smurolíum.

Meðaltal gengisvísitölu síðustu tólf mánaða var 194,0 og var gengið 0,8% veikara en á tólf mánaða tímabili ári fyrr þegar meðaltal gengisvísitölu var 192,4 Gengið var 0,9% sterkara í mars 2024 (194,9) samanborið við mars 2023 (196,6).

Í þessari frétt er um að ræða bráðabirgðatölur fyrir mars og gætu niðurstöður breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.