FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 31. MARS 2017

Vöruviðskiptajöfnuður
Í febrúar voru fluttar út vörur fyrir 31,6 milljarða króna og inn fyrir 44,3 milljarða króna fob (47,2 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í febrúar, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 12,7 milljarða króna. Í febrúar 2016 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 2,9 milljarða króna á gengi hvors árs.¹

Á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2017 voru fluttar út vörur fyrir 69,1 milljarð króna en inn fyrir 90,5 milljarða króna fob (96,5 milljarða króna cif). Halli var því á vöruviðskiptum við útlönd sem nam 21,4 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma árið áður voru vöruviðskiptin óhagstæð um 3,5 milljarða á gengi hvors árs.¹ Vöruviðskiptajöfnuðurinn var því 17,9 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2017 var verðmæti vöruútflutnings 19,3 milljörðum króna lægra, eða 21,8%, á gengi hvors árs,¹ en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 61,0% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 2,8% lægra en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 31,7% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 43,3% lægra en á sama tíma árið áður, vegna verðlækkunar, auk þess sem reikna má með að áhrifa af verkfalli sjómanna gæti enn í tölunum.

Innflutningur
Á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2017 var verðmæti vöruinnflutnings 1,4 milljörðum króna lægra, eða 1,6%, á gengi hvors árs,¹ en á sama tímabili árið áður. Aðallega dróst innflutningur á fjárfestingavörum og neysluvörum saman en á móti jókst innflutningur á flutningatækjum.

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar–febrúar 2016 og 2017
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra
  Febrúar Jan.–febrúar ári á gengi hvors árs,
  2016 2017 2016 2017  % jan.–febrúar
           
Útflutningur alls fob 42.509,8 31.557,1 88.374,2 69.111,3 -21,8
Sjávarafurðir 18.261,5 8.213,6 38.651,0 21.933,0 -43,3
Landbúnaðarvörur 1.550,2 1.845,3 2.924,1 3.425,9 17,2
Iðnaðarvörur 22.015,8 20.688,2 43.362,6 42.137,4 -2,8
Aðrar vörur 682,3 810,0 3.436,4 1.614,9 -53,0
           
Innflutningur alls fob 45.369,0 44.291,1 91.904,4 90.478,4 -1,6
Matvörur og drykkjarvörur 4.360,3 3.850,0 8.147,4 7.529,0 -7,6
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 11.930,9 12.530,2 24.518,9 24.712,8 0,8
Eldsneyti og smurolíur 3.628,8 3.227,5 7.650,1 7.565,8 -1,1
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 11.451,3 10.518,5 23.630,4 21.767,5 -7,9
Flutningatæki 7.558,4 8.047,6 13.716,3 16.269,0 18,6
Neysluvörur ót.a. 6.425,0 6.085,2 14.141,4 12.570,2 -11,1
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 14,3 32,0 99,8 64,1 -35,8
           
Vöruskiptajöfnuður -2.859,1 -12.734,0 -3.530,2 -21.367,2 .

¹Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruviðskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruviðskiptum.
Mánaðarlegar tölur um vöruviðskipti líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.