FRÉTT VERÐLAG 30. ÁGÚST 2007

Vísitala framleiðsluverðs í júlí 2007 var 115,5 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og lækkaði um 2,3% frá fyrri mánuði. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 119,7 stig, óbreytt frá fyrri mánuði, og vísitala fyrir stóriðju var 134,0 stig, lækkaði um 6,5% ( vísitöluáhrif -1,3%). Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 0,1% milli mánaða (0,0%) en vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 3,9% frá júní (-1,0%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands lækkaði um 1,1% (-0,4%)  milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir lækkaði hún um 3,0% (-1,9%).

Frá júlí 2006 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 6,5%; sjávarafurðir hafa lækkað í verði um 6,8% og afurðir stóriðju um 10,2% en matvælaverð hefur hækkað um 2,2%.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
2007 Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar 
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
Janúar 0,9 0,4 4,1 0,7 0,2 1,3
Febrúar -3,1 -3,5 -3,7 0,7 -0,2 -4,8
Mars 0,0 -0,3 0,4 -0,4 0,6 -0,3
Apríl -0,5 0,4 -3,6 0,1 0,1 -0,9
Maí -2,4 -4,2 -1,2 0,0 -0,5 -3,5
Júní -0,1 -1,0 -1,3 -0,1 0,8 -0,7
Júlí -2,3 0,0 -6,5 0,1 -1,1 -3,0

Breyting frá fyrra ári (%)
2007 Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar 
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
Janúar 22,4 28,6 42,0 7,1 8,0 30,9
Febrúar 15,6 23,1 24,9 6,8 7,1 20,2
Mars 9,5 14,4 12,2 5,8 7,3 10,4
Apríl 3,9 6,7 1,2 4,9 6,9 2,1
Maí 1,0 2,0 -3,2 4,0 5,5 -1,7
Júní -4,8 -4,5 -14,8 2,3 4,1 -9,5
Júlí -6,5 -6,8 -10,2 2,2 0,9 -10,7

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.