FRÉTT VERÐLAG 10. FEBRÚAR 2006

Vísitala neysluverðs í febrúar 2006 er 249,5 stig (maí 1988=100) og lækkaði um 0,08% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 230,9 stig, lækkaði um 0,26% frá því í janúar.

Vetrarútsölur eru enn í gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 9,9% (vísitöluáhrif -0,47%).

Verð á eigin húsnæði í vísitölu neysluverðs hækkaði um 0,7% (0,11%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,1% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 1,0%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,6% sem jafngildir 2,4% verðbólgu á ári (1,0% verðhjöðnun fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs í febrúar 2006, sem er 249,5 stig, gildir til verð¬tryggingar í mars 2006. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 4.926 stig fyrir mars 2006.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2005–2006
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2005
Janúar 239,2 0,1 1,0 3,1 4,0 4,0
Febrúar 239,7 0,2 2,5 3,1 4,4 4,5
Mars 241,5 0,8 9,4 4,3 5,1 4,7
Apríl 242,0 0,2 2,5 4,8 3,9 4,3
Maí 240,7 -0,5 -6,3 1,7 2,4 2,9
Júní 242,4 0,7 8,8 1,5 2,9 2,8
Júlí 242,7 0,1 1,5 1,2 2,9 3,5
Ágúst 243,2 0,2 2,5 4,2 2,9 3,7
September 246,9 1,5 19,9 7,6 4,5 4,8
Október 248,4 0,6 7,5 9,7 5,4 4,6
Nóvember 248,0 -0,2 -1,9 8,1 6,2 4,2
Desember 248,9 0,4 4,4 3,3 5,4 4,1
2006
Janúar 249,7 0,3 3,9 2,1 5,9 4,4
Febrúar 249,5 -0,1 -1,0 2,4 5,2 4,1

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2006
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Jan. 2006 Feb. 2006 Áhrif á vísit.
  %
Vísitala neysluverðs 139,9 139,8 4,1% 4,1%
Þar af:    
Innlendar vörur 128,6 129,4 1,3% 0,2%
Búvörur og grænmeti 125,2 126,1 2,7% 0,2%
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 130,7 131,4 0,4% 0,0%
Innfluttar vörur alls 112,0 110,6 -1,0% -0,3%
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  107,9 106,3 -1,2% -0,3%
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., 
ávaxta og bensíns) 141,1 140,9 3,8% 3,4%
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 141,1 140,9 4,0% 3,2%
Dagvara 122,1 122,6 -0,4% -0,1%

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.