FRÉTT VERÐLAG 12. SEPTEMBER 2007

Vísitala neysluverðs í september 2007 er 276,7 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 1,32% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 247,8 stig, hækkaði um 1,14% frá ágúst.

Sumarútsölum er nú víða lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 13,6% (vísitöluáhrif 0,54%).

Kostnaður vegna eigin húsnæðis jókst um 2,5% (0,47%), þar af voru 0,41% áhrif vegna hækkunar á markaðsverði húsnæðis en 0,06% vegna hækkunar vaxta. Verð á bensíni og olíum hækkaði um 3,2% (0,15%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,2% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 1,1%. Fastskattavísitala neysluverðs hefur hækkað um 6,0% síðastliðna tólf mánuði. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,6% sem jafngildir 6,5% verðbólgu á ári (2,6% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs í september 2007, sem er 276,7 stig, gildir til verðtryggingar í október 2007. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 5.463 stig fyrir október 2007.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2006–2007
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2006
September 265,6 0,6 7,5 5,8 10,8 7,6
Október 266,2 0,2 2,7 4,8 8,8 7,2
Nóvember 266,1 0,0 -0,4 3,2 5,6 7,3
Desember 266,2 0,0 0,5 0,9 3,3 7,0
2007
Janúar 266,9 0,3 3,2 1,1 2,9 6,9
Febrúar 268,0 0,4 5,1 2,9 3,1 7,4
Mars 267,1 -0,3 -4,0 1,4 1,1 5,9
Apríl 268,7 0,6 7,4 2,7 1,9 5,3
Maí 271,0 0,9 10,8 4,6 3,7 4,7
Júní 272,4 0,5 6,4 8,2 4,7 4,0
Júlí 273,0 0,2 2,7 6,6 4,6 3,8
Ágúst 273,1 0,0 0,4 3,1 3,8 3,4
September 276,7 1,3 17,0 6,5 7,3 4,2

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2007
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Ágúst September %
Vísitala neysluverðs 153,0 155,0 4,2% 4,2%
Þar af:    
Innlendar vörur 131,2 132,0 -4,1% -0,6%
Búvörur og grænmeti 127,9 128,7 -4,2% -0,3%
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 133,1 133,9 -4,1% -0,3%
Innfluttar vörur alls 118,6 121,3 0,3% 0,1%
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  114,4 117,1 0,0% 0,0%
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., 
ávaxta og bensíns) 155,1 157,1 5,2% 4,6%
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 155,9 158,0 5,3% 4,3%
Dagvara 124,8 125,5 -4,9% -0,8%

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.