FRÉTT VERÐLAG 27. SEPTEMBER 2017

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í september 2017 er 444,6 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,14% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 383,7 stig og lækkar um 0,21% frá ágúst 2017.

Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkar um 1,2% (áhrif á vísitöluna 0,24%). Föt og skór hækka um 6,0% (0,21%). Flugfargjöld til útlanda lækka um 18,8% (-0,25%). Matur og drykkjarvörur lækka um 1,3% (-0,17%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,4% en vísitalan án húsnæðis hefur lækkað um 3,1%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í ágúst 2017, sem er 444,6 stig, gildir til verðtryggingar í nóvember 2017. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.779 stig fyrir nóvember 2017.

Breytingar á vísitölu neysluverðs 2016-2017
Maí 1988 = 100   Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
    Breytingar í hverjum mánuði, %
    Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2016            
September 438,5 0,5 5,9 2,0 2,7 1,8
Október 438,5 0,0 0,0 3,4 2,2 1,8
Nóvember 438,4 0,0 -0,3 1,8 1,3 2,1
Desember 439,0 0,1 1,7 0,5 1,2 1,9
2017            
Janúar 436,5 -0,6 -6,6 -1,8 0,7 1,9
Febrúar 439,6 0,7 8,9 1,1 1,5 1,9
Mars 439,9 0,1 0,8 0,8 0,6 1,6
Apríl 442,1 0,5 6,2 5,2 1,6 1,9
Maí 443,0 0,2 2,5 3,1 2,1 1,7
Júní 443,0 0,0 0,0 2,8 1,8 1,5
Júlí 442,9 0,0 -0,3 0,7 3,0 1,8
Ágúst 444,0 0,2 3,0 0,9 2,0 1,7
September 444,6 0,1 1,6 1,5 2,1 1,4

Talnaefni

 

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.