FRÉTT VERÐLAG 24. JÚLÍ 2013

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í júlí 2013 er 412,4 stig (maí 1988=100) og lækkaði um 0,27% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 391,2 stig og lækkaði um 0,61% frá júní.
Sumarútsölur eru víða í gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 10,5% (vísitöluáhrif -0,54%). Kostnaður vegna eigin húsnæðis jókst um 1,3% (0,17%). Verð á bensíni og olíum hækkaði um 2,0% (0,11%).
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,8% og vísitalan án húsnæðis sömuleiðis. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,2% sem jafngildir 0,9% verðbólgu á ári (-0,8% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2013
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Júní Júlí %
Vísitala neysluverðs 231,7 231,1 3,8 3,8
Þar af:
Innlendar vörur og grænmeti 209,9 210,6 3,6 0,5
Búvörur og grænmeti 196,9 197,5 3,2 0,2
Innlendar vörur án búvöru 219,3 220,0 4,0 0,3
Innfluttar vörur alls 203,3 200,2 2,1 0,7
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  194,9 191,6 1,5 0,5
Dagvara 208,9 209,1 3,4 0,6

Breytingar vísitölu neysluverðs 2012–2013
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2012
Júlí 397,2 -0,7 -8,4 -1,0 5,3 4,6
Ágúst 396,6 -0,2 -1,8 -1,5 2,9 4,1
September 399,6 0,8 9,5 -0,5 2,3 4,3
Október 400,7 0,3 3,4 3,6 1,3 4,2
Nóvember 402,0 0,3 4,0 5,6 2,0 4,5
Desember 402,2 0,0 0,6 2,6 1,1 4,2
2013
Janúar 403,3 0,3 3,3 2,6 3,1 4,2
Febrúar 409,9 1,6 21,5 8,1 6,8 4,8
Mars 410,7 0,2 2,4 8,7 5,6 3,9
Apríl 411,5 0,2 2,4 8,4 5,5 3,3
Maí 411,3 0,0 -0,6 1,4 4,7 3,3
Júní 413,5 0,5 6,6 2,8 5,7 3,3
Júlí 412,4 -0,3 -3,1 0,9 4,6 3,8

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í júlí 2013, sem er 412,4 stig, gildir til verðtryggingar í september 2013. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.143 stig fyrir september 2013.

Talnaefni


 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.