FRÉTT VINNUMARKAÐUR 01. FEBRÚAR 2024

Helstu niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofu Íslands fyrir fjórða ársfjórðung 2023 sýna að staða vinnuafls á íslenskum vinnumarkaði hefur, eins og á þriðja ársfjórðungi, haldist tiltölulega stöðug á milli ára.

Hlutfall mannfjölda 16 til 74 ára á vinnumarkaði, eða atvinnuþátttaka, mældist 79,7% á fjórða ársfjórðungi 2023 sem er litlu hærra hlutfall en á sama ársfjórðungi 2022 þegar atvinnuþátttaka mældist 79,5%. Fjöldi starfandi fólks á fjórða ársfjórðungi 2023 var 220.300 manns og var hlutfall starfandi einstaklinga af mannfjölda 77,2%.

Frá fjórða ársfjórðungi 2022 til fjórða ársfjórðungs 2023 fjölgaði starfandi fólki um 7.900 manns og hlutfall þess af mannfjölda jókst um 0,3 prósentustig. Hlutfall starfandi kvenna var 73,0 % og starfandi karla 81,0%. Fjöldi starfandi kvenna stóð nánast í stað á meðan körlum fjölgaði nokkuð eða um 7.600. Hlutfall starfandi fólks á höfuðborgarsvæðinu var 76,6% og utan höfuðborgarsvæðisins 78,1%.

Til samanburðar voru 212.400 starfandi einstaklingar á fjórða ársfjórðungi 2022 og hlutfall þeirra af mannfjölda 76,9%. Hlutfall starfandi kvenna var 74,7% og starfandi karla 79,0%. Þá var hlutfall starfandi fólks á höfuðborgarsvæðinu 77,7% og 75,5% utan þess.

Af starfandi fólki á fjórða ársfjórðungi 2023 voru 168.400 í fullu starfi, eða 76,4%, og 51.900 í hlutastarfi eða 23,6%. Fjöldi einstaklinga í fullu starfi jókst um 11.700 frá fjórða ársfjórðungi 2022 og jókst hlutfall þeirra af heildarfjölda starfandi fólks um 2,7 prósentustig. Af starfandi konum voru 65,8% í fullu starfi á fjórða ársfjórðungi 2023 og 85,2% af starfandi körlum. Af þeim sem voru í hlutastarfi á fjórða ársfjórðungi 2023 töldust um 7.500 manns vinnulitlir eða 3,4% af öllum starfandi.

Til samanburðar töldust 7.100 manns vinnulitlir á sama ársfjórðungi 2022 eða 3,3%. Til vinnulítilla telst fólk í hlutastarfi sem bæði getur og vill vinna fleiri vinnustundir en það gerir.

Meðalfjöldi unninna stunda
Á fjórða ársfjórðungi 2023 var meðalfjöldi heildarvinnustunda á viku 35,5 klukkustundir hjá þeim sem voru við vinnu. Heildarvinnustundir kvenna voru að meðaltali 31,3 stundir en 38,8 stundir hjá körlum. Til samanburðar var meðalfjöldi vinnustunda 36,1 stund á fjórða ársfjórðungi 2022. Konur unnu þá að jafnaði 32,8 stundir og karlar 38,9 stundir.

Atvinnuleysi 3,2% á fjórða ársfjórðungi
Á fjórða ársfjórðungi 2023 töldust að meðaltali 7.400 einstaklingar atvinnulausir eða 3,2% af heildarvinnuafli 16-74 ára og einnig hjá konum og körlum. Til samanburðar voru um 7.200 einstaklingar atvinnulausir á fjórða ársfjórðungi 2022 og var hlutfall þeirra af vinnuafli 3,3%. Atvinnuleysi á meðal kvenna var þá 2,5% og á meðal karla 3,9%.

Hjá þeim sem eru í aldurshópnum 16 til 24 ára var atvinnuleysi 8,9% sem er nokkru hærra en það var á sama ársfjórðungi árið 2022 þegar það var 5,8%. Hjá aldurshópnum 25 til 54 ára var atvinnuleysi 2,6%, sem er tæpu prósentustigi lægra en það var á fjórða ársfjórðungi 2022. Hjá elsta hópnum, 55-74 ára, var atvinnuleysið 1,2% samanborið við 1,5% á fjórða ársfjórðungi 2022.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.