FRÉTT ÝMISLEGT 13. MARS 2024

Hagstofuvefurinn tekur breytingum í dag en markmiðið er að gera vefinn notendavænni og aðgengilegri fyrir notendur.

Útlit og uppbygging á vefnum er nú fært til betri vegar. Skýrari greinarmunur er gerður á fréttatilkynningum og uppfærslu á talnaefni, annars vegar með merkingum og hins vegar með því að skipta þeim upp í tvo dálka á forsíðunni.

Ein aðalfrétt verður nú á forsíðunni prýdd ljósmynd. Einnig hafa verið gerðar ákveðnar efnisbreytingar á uppfærslu talnaefnis og myndritum á vefnum hefur verið fjölgað.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.