FRÉTT ÝMISLEGT 04. APRÍL 2024

Verðlaunaafhending fór fram í gær í undankeppni Evrópsku tölfræðikeppninnar hér á landi sem nefnist Greindu betur. Keppt var í tveimur flokkum, yngri flokki (9.-10. bekkur í grunnskóla) og eldri flokki (1.-2. ár í framhaldsskóla). Verðlaunin veitti Hrafnhildur Arnkelsdóttir hagstofustjóri.

Fyrsta sætið í yngri flokknum hlaut liðið Goðar frá Sjálandsskóla með verkefnið Tekjur á Íslandi. Í öðru sæti var liðið Ernirnir einnig frá Sjálandsskóla með verkefnið Greining á ferðamennsku hér á landi. Í þriðja sæti var liðið Nál frá Ölduselsskóla með verkefnið Fjölgun íbúa Reykjavíkur á 20. öldinni.

Liðið Gæsirnar frá Verzlunarskóla Íslands bar sigur úr býtum í eldri flokknum með verkefnið Er farþegafjöldi til Íslands að aukast?

Hagstofa Íslands var gestgjafi keppninnar en hún var styrkt af Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. Keppnin er þverfaglegt tilraunaverkefni sem ætlað er að veita unglingum á aldrinum 14 til 18 ára tækifæri til þess að efla hæfni sína í því að nýta upplýsingar á ábyrgan, skapandi og gagnrýninn hátt og getu sína til þess að taka upplýstar ákvarðanir.

Verðlaunahafar í tölfræðikeppninni Greindu betur ásamt Hrafnhildi Arnkelsdóttur hagstofustjóra.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.