Gistingar ferðamanna 2014
Seldar gistinætur voru 5,5 milljónir hér á landi árið 2014 og fjölgaði um tæp 21% frá fyrra ári. Gistinætur erlendra ferðamanna voru 80% af heildarfjölda gistinátta og fjölgaði um 25% frá fyrra ári á sama tíma og gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 6%. Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru 60% allra gistinátta, 17% gistinátta voru á tjaldsvæðum og 23% á öðrum tegundum gististaða. Þá fjölgaði gistinóttum í öllum landshlutum á milli ára.