Landsframleiðslan á 3. ársfjórðungi 2015


  • 8. desember 2015
  • ISSN: 1670-4770


Sækja pdf skjal
Landsframleiðslan á fyrstu níu mánuðum ársins 2015 jókst um 4,5% að raungildi borið saman við fyrstu níu mánuði ársins 2014. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld um 6,2%. Einkaneysla jókst um 4,4%, samneysla um 0,9% og fjárfesting um 15,8%. Útflutningur jókst um 7,4% og innflutningur nokkru meira, eða um 10,9%. Landsframleiðslan á 3. ársfjórðungi 2014, án árstíðaleiðréttingar, jókst um 2,6% frá sama ársfjórðungi fyrra árs en árstíðaleiðrétt landsframleiðsla jókst um 0,7% frá 2. ársfjórðungi 2015.

Til baka