Nýskráðum einkahlutafélögum á árinu 2014 fjölgaði um 6% samanborið við fyrra ár. Alls voru 2.050 ný félög skráð á árinu. Mest fjölgun nýskráninga var í flokknum Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi, eða sem nemur 33%.


Gjaldþrotum einkahlutafélaga á árinu 2014 fækkaði um 14% frá fyrra ári. Alls voru 795 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á árinu, samanborið við 920 árið áður. Gjaldþrotum í flokknum Fasteignaviðskipti hefur fækkað mest, eða um 36%.

Nýskráningar og gjaldþrot
  Desember   Janúar - Desember  
  2014 2013 % 2014 2013 %
Nýskráningar ehf og hf.
Alls 182 172 6 2.050 1.935 6
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar   8 1 700 92 87 6
C Framleiðsla  5 3 67 74 90 -18
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð   18 18 0 223 182 23
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum   23 18 28 287 282 2
H Flutningar og geymsla   3 6 -50 47 38 24
I Rekstur gististaða og veitingarekstur   14 7 100 131 132 -1
J Upplýsingar og fjarskipti  10 11 -9 185 171 8
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi   38 45 -16 311 301 3
L Fasteignaviðskipti   24 25 -4 222 258 -14
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi   23 15 53 191 144 33
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta   6 8 -25 153 137 12
Gjaldþrot
Alls 45 56 -20 795 920 -14
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar   2 2 0 25 31 -19
C Framleiðsla  1 7 -86 52 57 -9
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð   5 6 -17 150 179 -16
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum   3 7 -57 144 172 -16
H Flutningar og geymsla   2 3 -33 30 31 -3
I Rekstur gististaða og veitingarekstur   6 7 -14 68 64 6
J Upplýsingar og fjarskipti  4 2 100 36 50 -28
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi   3 2 50 55 79 -30
L Fasteignaviðskipti   10 8 25 79 123 -36
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi   3 5 -40 69 62 11
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta   2 2 0 33 27 22


Talnaefni