Heildarlaunakostnaður á greidda stund dróst saman um 3,2% frá fyrri ársfjórðungi í atvinnugreininni samgöngum og flutningum og um 2,1% í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð. Á sama tímabili jókst heildarlaunakostnaður á greidda stund um 0,7% í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu og um 0,1% í iðnaði.

Í áðurnefndum atvinnugreinum jókst heildarlaunakostnaður án óreglulegra greiðslna frá fyrri ársfjórðungi. Mest var hækkunin í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu, 5,3%, en minnst í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, 2,1%. Í heildarlaunakostnaði án óreglulegra greiðslna er aðeins tekið tillit til greiðslna sem gerðar eru upp á hverju útborgunartímabili.

Árshækkun heildarlaunakostnaðar á greidda stund frá 1. ársfjórðungi 2009 var á bilinu 0,2% til 11,1%. Mest var hækkunin í iðnaði en minnst í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð.

 

Þann 1. janúar síðastliðinn hækkaði tryggingagjald úr 7,0% í 8,65% og gætir áhrifa þess á breytingar vísitölu launakostnaðar á 1. ársfjórðungi 2010.

Vísitala launakostnaðar er kostnaðarvísitala sem sýnir breytingar á launakostnaði á greidda stund og er ekki leiðrétt fyrir breytingum í samsetningu vinnuafls og vinnustunda. Niðurstöður eru birtar með fyrirvara um breytingar. Vísitala launakostnaðar er gefin út ársfjórðungslega og reiknuð samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og Ráðsins nr. 450/2003.

Talnaefni