Fólksfækkun varð á landinu á árinu 2009 í fyrsta sinn frá lokum 19. aldar. Þann 1. janúar 2010 voru 317.630 íbúar með fasta búsetu á Íslandi, samanborið við 319.368 ári áður. Fækkunin nemur hálfu prósenti. Á síðustu fimm árum hefur fjölgun landsmanna þó verið hlutfallslega ör eða 1,6% á ári að jafnaði.

Fólki fækkaði á öllum landsvæðum á árinu 2009. Fækkunin varð mest á Austurlandi og á Vesturlandi, en minnst á Norðurlandi vestra, Vestfjörðum og á höfuðborgarsvæðinu. Mannfækkunin stafar af miklum búferlaflutningum frá landinu.

Á undanförnum fimm árum varð íbúafjölgunin mest á Suðurnesjum, en á höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi hefur fjölgað lítillega meira en sem nemur landsmeðaltali, en lítillega undir lands-meðaltali á Vesturlandi. Á Austurlandi og Norðurlandi eystra fjölgaði talsvert minna en sem nemur landsmeðaltali. Á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra varð fólksfækkun á síðustu fimm árum.

Íbúaþróun eftir byggðakjörnum, árleg breyting 2005–2009

 

Þessum niðurstöðum eru gerð nánari skil í nýju hefti Hagtíðinda sem Hagstofan gefur út í dag.

Mannfjöldi 1. janúar 2010 - Hagtíðindi

Talnaefni:
   Yfirlit
   Sveitarfélög
   Byggðakjarnar, póstnúmer og hverfi
   Ríkisfang, fæðingarland og uppruni íbúa
   Fjölskyldan