Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 102,8 stig (2005=100) í nóvember sl. og var hún óbreytt frá fyrra mánuði. Á sama tíma var vísitalan fyrir Ísland 107,1 stig, einnig óbreytt frá október.
Frá nóvember 2005 til jafnlengdar árið 2006 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 2,1% að meðaltali í ríkjum EES, 1,9% á evrusvæðinu og 6,1% á Íslandi.
Mesta verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 6,4% í Ungverjalandi og 6,3% í Lettlandi. Minnst var verðbólgan 0,9% á Möltu og 1,0% í Tékklandi.
Í EES ríkjum er miðað við samræmda evrópska neysluverðsvísitölu. Í Bandaríkjunum, Japan og
Sviss er miðað við neysluverðsvísitölur.
1) Verðbólga í viðskiptalöndum mæld með gengisvog Seðlabanka Íslands
2) Bráðabirgðatölur
3) Október 2005 til október 2006
Talnaefni