Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í október 2012 er 400,7 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,28% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 382,1 stig og hækkaði um 0,47% frá september.

Verð á dagvörum hækkaði um 0,6% (vísitöluáhrif 0,11%) en kostnaður vegna eigin húsnæðis minnkaði um 0,4% (-0,11%). Þar af voru -0,105% áhrif af lækkun markaðsverðs og -0,05 af lækkun raunvaxta.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,2% og vísitalan án húsnæðis um 4,7%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,9% sem jafngildir 3,6% verðbólgu á ári (5,6% verðbólgu á ári fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í október 2012, sem er 400,7 stig, gildir til verðtryggingar í desember 2012. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 7.912 stig fyrir desember 2012.

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2012
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
   September Október %
Vísitala neysluverðs 223,9 224,5 4,2 4,2
Þar af:
Innlendar vörur og grænmeti 201,5 202,2 5,1 0,7
Búvörur og grænmeti 189,0 189,6 5,9 0,4
Innlendar vörur án búvöru 210,7 211,5 4,3 0,3
Innfluttar vörur alls 199,7 201,3 3,7 1,4
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  192,5 194,3 3,7 1,3
Dagvara 200,0 201,3 4,7 0,8

Breytingar vísitölu neysluverðs 2011–2012
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2011
Október 384,6 0,3 4,1 5,0 5,7 5,3
Nóvember 384,6 0,0 0,0 3,9 3,7 5,2
Desember 386,0 0,4 4,5 2,8 3,5 5,3
2012
Janúar 387,1 0,3 3,5 2,6 3,8 6,5
Febrúar 391,0 1,0 12,8 6,8 5,4 6,3
Mars 395,1 1,0 13,3 9,8 6,3 6,4
Apríl 398,2 0,8 9,8 12,0 7,2 6,4
Maí 398,1 0,0 -0,3 7,5 7,1 5,4
Júní 400,1 0,5 6,2 5,2 7,4 5,4
Júlí 397,2 -0,7 -8,4 -1,0 5,3 4,6
Ágúst 396,6 -0,2 -1,8 -1,5 2,9 4,1
September 399,6 0,8 9,5 -0,5 2,3 4,3
Október 400,7 0,3 3,4 3,6 1,3 4,2

Talnaefni