Iceland in Figures 2018
Iceland in figures er bæklingur á ensku í vasabroti (11x16 sm) sem Hagstofan gefur út árlega. Hann er sniðinn að ferðaþjónustunni en í honum eru ýmsar lykiltölur um land og þjóð.
Í bæklingnum má m.a. finna talnaefni um veðráttu, umhverfi, mannfjölda, laun, tekjur, vinnumarkað, atvinnuvegi, utanríkisverslun, samgöngur, upplýsingatækni, ferðaþjónustu, verðlag, neyslu, þjóðarbúskap, heilbrigðismál, félagsmál, skóla, menningu og kosningar.