ÍSNÁM2008 — Íslensk náms- og menntunarflokkun


  • Flokkunarkerfi
  • 17. september 2008
  • ISSN: 1670-4770


Sækja pdf skjal
Uppbygging menntakerfa er misjöfn frá einu landi til annars. Til þess að unnt sé að bera saman ólík menntakerfi er nauðsynlegt að nota samhæft flokkunarkerfi.

Hagstofa Íslands hefur um árabil aflað gagna um íslenska skólakerfið og beitt alþjóðlega flokkunarstaðlinum ISCED (International Standard Classification of Education) við úrvinnslu gagna fyrir innlendar og alþjóðlegar samantektir um menntamál. Árið 1997 var tekinn upp nýr alþjóðlegur flokkunarstaðall fyrir menntun, ISCED-97, sem leysti af hólmi fyrri ISCED-staðal frá árinu 1976.

Við innleiðingu ÍSNÁM2008 hefur mennta- og menningarmáladeild Hagstofunnar unnið að flokkun íslenska menntakerfisins samkvæmt hinum nýja staðli.

Til baka