Landsframleiðslan 2013


  • Hagtíðindi
  • 7. mars 2014
  • ISSN: 1670-4665


Sækja pdf skjal
Landsframleiðsla jókst að raungildi um 3,3% á árinu 2013. Hagvöxtur hefur ekki verið meiri frá árinu 2007 og hefur landsframleiðsla ekki verið hærri að raungildi frá árinu 2008. Utanríkisverslun dregur hagvöxtinn áfram því þjóðarútgjöld á árinu 2013 jukust lítillega eða um 0,1%. Einkaneysla jókst um 1,2% og samneysla um 1,3% en fjárfesting dróst saman um 3,4%. Útflutningur jókst um 5,3% á sama tíma og innflutningur dróst saman um 0,1% þannig að verulegur afgangur varð af vöru- og þjónustuviðskiptum á liðnu ári, eða 132 milljarðar króna.

Til baka